Litli Bergþór - 24.02.1984, Blaðsíða 4
-2-
Með hækkandi sól vex með fólki hugur og þor, menn
skríða úr híði sínu, taka að velta fyrir sór fyrirhuguðum
framkvæmdum og það sem meira er ráðast til atlögu við verkin.
En sumir eru latir og vilja kúra sem lengst í híði
sínu og humma fram af sér fyrirhuguð verkefni.
Útgáfunefnd er ein heirra sem lengi lá í híði sínu en
er nú nýskriðin úr híðinu eftir væran vetrarsvefn.
Af þeirri einföldu ástæðu þykir ritstjóra - og eflaust
öllum öðrum líka- tími til kominn að sá hinn sami skríði
varanlega í híði sitt og eftirláti öðrum ritstjórastól sinn.
I stuttu og einföldu máli sagt; óg er orðin svo löt
að óg ætla að hætta þessu.
Það er orðin föst hefð að gera einhverjar breytingar
á blaðinu í hvert sinn sem það kemur út. Að þessu sinni
er það fjárhagshliðin sem hefur þröngvað okkur út í birtingu
auglýsinga og að auki hækkum við áskriftargjaldið talsvert.
Einnig birtast nú ljósmyndir í fyrsta sinn í blaðinu
og er vonandi að þsör komi vel út.
Af starfsemi annara fólaga en Umf. er lítið að þessu
sinni, utan sauðfjárræktarfólagsins, en lítið eða ekkert
hefur sóst frá því á síðum Litla-Bergþórs. Að öllum lík-
indum birtist síðan eitthvert efni frá nautgriparræktar-
fólaginu í næsta blaði. Það verður eflaust þeim til ánægju
sem áhuga hafa á búfjárrækt, og hinum ekki síður.
Að þessu sinni var blaðið allt vólritað á eina og
sömu vólina, rafmagnsritvól sem Arnór Karlsson var svo
vinsamlegur að lána okkur. Eærum við honum bestu þakkir.
Einnig þökkum við þeim Daníel Hansen óg Elínborgu
Sigurðardóttur fyrir þeirra tillag í blaðið, en þau eiga
heiðurinn af hinum samræmdu fyrirsögnum sem einkenna það.
Að svo mæltu óska'óg ykkur góðrar skemmtunar
yfir lestrinum,og þakka góða samvinnu sl. 2 ár.
Lifið heil.