Litli Bergþór - 24.02.1984, Síða 8
Fleiri taka ekki til máls um þetta, og er samþykkt með
10 atkvæðum gegn 2 að kjðsa mállýtanefnd. Hún er kosin
leynilegri kosningu og Hljðta eftirtaldir félagar sæti í
henni: Þorfinnur Þðrarinsson með 15 atkvæðum, Bergur Jðnsson
með 12 og Viktoría Guðmundsdðttir með 10.
Ekki er getiðjum. störf. mállýfane.fndár:_ á'næstu fundum,
en í fundargerð frá fundi í júlí 1909 segir eftir að greint
hefur verið frá fundarsetningu: "Lesin voru nokkur mállýti
frá síðasta fundi." Og í fundargerð aðalfundar um haustið
er greint frá að nokkur mállýti hafi verið lesin. Hvergi
kemur fram hver þessi mállýti voru né heldur hverjir létu
þau sér um munn fara.
Á aðalfundi haustið 1910 tekur Viktoría Guðmundsdðttir
þetta mál upp aftur og var^ar fram þeirri spurningu, hvort
ekki sé rétt að kjðsa mállytanefnd eins og gert hafi verið
undanfarin ár. "Taldi hana að sjálfsögðu geta unnið gagn,'
þðtt lítið hefði hún starfað hingað til." Pormaður, Þorsteinn
Þðrarinsson, styður þetta með "alllangri ræðu", eins og segir
í fundargerð.
Viktoría flytur svo eftirfarandi tillögu, sem var sam-
þykkt samhljðða: "Fundurinn er því samþykkur að kosin sé
nefnd þriggja manna til þess að athuga mállýti þau er fyrir
kunna að koma á fundum félagsins." I fundarlok er stjðrn
félagsins kosin í nefndina.
A fundi tæpu ári síðar, 10.9.1911, er lesið hréf frá
Ungmennafélagi Reykjavíkur um "verndan mððurmálsins" "Var
heðið um að safna mállýtum þeim er finnast kynnu í daglegu
tali og senda safn það til Ungmennaf. Reykjavíkur, er síðar
myndi láta hirta á prenti mállýti þau er væntanlega yrði
safnað víðsvegar úm land." Sagt er að hréfinu hafi verið
vel tekið, en það fær ekki frekari umfjöllun. Á næsta fundi'
sem var aðalfundur, var enn að tillögu Viktoríu kosin mál-
lýtanefnd, og hlutu kosningu formaður, ritari og Guðríður
Þðrarinsdðttir.
Ekkert er getið um störf þessarar nefndar eða annarra
næstu árin. Málið er þð ekki algerlega fallið niður enn,
því á fundi 24. janúar 1915 segir formaður frá því að hann
eigi "uppskrifuð ýmis mállýti og sagðist fús til að lesa
þau upp einhverntíma á fundi ef félagar ðskuðu." Þessu
hafði verið "tekið þakksamlega". Á næsta fundi getur for-
maður þess að ekki verði lesin upp mállýti á þessum fundi
eins og gert hafi verið ráð fyrir á síðasta.fuhdi ^enda
ágæt grein í "Baldri"' um sama efni". Baldur þessi hefur
ekki fundist og eru því engar tiltækar heimildir um hver
þessi mállýti voru.
Ritstjðra vantar að Litla-Bergþór um ðkomna framtíð.
Vinna hálfan eða allan daginn.
Laun í samræmi við getu.
Þeir sem áhuga hafa á starfinu, hafi samhand við stjórn U.M.P.B.