Litli Bergþór - 24.02.1984, Page 13
-11'
Svo flyt.jið ]3ið að Torfastöðum«
Já;Smáratún vorum við með á leigu og að því kom að
okkur var sagt upp ábúðinni. Þá vorum p.ð búin að búa í
4 ár og við t.d. hjðn með 1 barn í 9 rn herbergi og þar
að auki undir súð og við langþreytt á þrengslum, svo það
var um annaðhvort að ræða að hætta eðá fá stærra húsnæði.
Nú við höfum að undanförnu notið heilmikils velvilja
og virðumst hafa traust og vilji var fyrir því að stækka
husnæðið hér.
Hér á ríkið jörð og hús og þar með upptalið, t.d. er
allt hðr inni okkar, gagnstætt því sem er á stofnunum svo
sem Breiðuvík.
En viðbyggingjn, hvernig vgrður hún?
Hvor fjölskylda fær þar 50^ fyrir sig, að auki kemur
borðstofa niðri ásamt nýjum inngangi og uppi verður sam-
eiginlegt herbergi, sjónvarps- eða föndurherbergi. I eldri
hlutanum verður áfram sameiginleg stofa og skólinn í
fremri stofunni en uppi eru herbergi krakkanna.
Nýjan góðan fjósainngang höfum við útbúið í kjallara
ásamt annari þjónustuaðstöðu.
Hvernig liður dagurinn h.já ykkur?
Skólinn er náttúrlega megin hluta dagsins, frá kl.
9-4. Við tökum hádegishló hálf 12 til l..Þá taka allir
til hendinni, þrífa, taka þátt í eldamennsku og krakkarnir
skiptast á um uppvask og annan frágang.
Svo er misjafnt hvað við gerum eftir það en það fara
alltaf einhverjir krakkanna í gegningar á kvöldin og einn
á morgnana. Um helgar er svo frí frá skóla.
A sumrin taka þau svo þátt í störfunum eftir því
sem til fellur.
Hvernig er meðferðinni háttað?
Krakkarnir sem koma eru af einhverjum ástæðum úr
jafnvægi. Oft eiga þau í erfiðleikum í skóla, en ofta:
eru líka einhverjir tilfinningalegir erfiðleikar sem ]
leitt af sér hegðun sem þykir ekki hagstæð og við vini
sem sagt á þessum punktum.
1 fyrsta lagi getum við verið nánast með einstak;
kennslu, en þau eru oft mikið á eftir í skóla og við
skiptumst á 2 og 2 með kennsluna, með allt að 6 nemendur.
Við höfum því tækifæri til að stilla námskröfurnar eftir
fólkinu, en ekki eftir stórum hóp eins og gerist almennt
í skólum.
1 öðru lagi er það tilfinningalegi eðá felagslegi
þátturinn. Við höfum heilmikið samstarf við fjölskyldur
krakkanna, þ.e. svokölluð fjölskyldumeðferð.
Við hittum fjölskylduna með börnunum mánaðarlega
og förum í gegn um vandamálin og reynum að laga barnið
aö því að flytjast aftur heim til fjölskyldunnar og
fjölskylduna að því aö laga sín samskipti, svo að hlut-
irnir verði vandræðaminni heldur en áöur var.
Eins er það hÓr innanhúss, að við notum okkur að búa
þátt og erum fljót að rekast á hornin hvert á öðru. Það
reynum við síðan að taka upp, bæði í hversdagslega^lffinu
og eins á sameiginlegum fundum, þar sem við förum í gegn
um árekstrana 0£ ástæður fvrir þeim.
Við vinnum mikið með ábyrgð og traust, reynum að
styrkja sjálfsmynd barnanna. Yfirleitt það að vera treyst
fyrir störfum er mikið atriði.