Litli Bergþór - 24.02.1984, Síða 17

Litli Bergþór - 24.02.1984, Síða 17
-15- VéíttV SlavpljéSt aísott -^Heilsufar hefur verið þokkalegt,engar meiriháttar pestir gengið a.m.k. frá því að undirritaður hóf störf hér þann 1. júli 1985. Nokkuð bar á gigtarstingjum eftir miðjan september eftir heyskaparskorpu en annars var furðulegt hve vel fólk tók ótíðinni í sumar. Starfsemi stöðvarinnar er með óbreyttu sniði frá fyrra ári. Starfsfólk hið sama nema hvað læknaskipti hafa verið nokkuð tíð en nú fer að sjá fyrir endann á því. Undirritaður var settur hór frá júlí 1983 og nýjustu fráttir herma að Gylfi Har- aldsson læknir í Svíþjóð só settur hór frá l.júlí 1984. Guð- mundur Jóhannsson lót af störfum hór í ágúst eftir 10 ára þjón- ustu og er honum hór með þakkað gott starf. Röntgentæki hafa verið keypt á árinu og er unnið að uppsetningu þeirra. Væntanlega lýkur því verki á næstu mánuðum. Samstaöa hefur náðst í hóraði um að standa að byggingu nýrrar heilsugæslu stöðvar og var sótt um fjárveitingu til alþingis í haust en engir peningar fengust til framkvæmda. Reynt verður að fara aftur á flot næsta haust og vonandi gengur betur þá. Það er augljóst mál öllum er um vilja hugsa að bygging þessi er nauðsynleg enda margrætt mál bæði heima í hóraði og af ráðu- neyti. Búið er að byggja nýjar stöðvar í öllum læknishéruðum á Suðurlandi nema hór og er þetta því að vissu marki .jafnróttis mál. Til frekari rökstuðnings má benda á að stöðin hór er llönr og er upphaflega hönnuð fyrir einn lækni án aðstoðarfólks en nú starfa 8 manns við stöðina sem þrátt fyrir viðbyggingu upp á 40mZ er alltof lítil. Til samanburðar má geta þess að staðall fyrir H2 stöð eins og hór er, er 400m^. Mór þykir ljóst að stærsta vandamálið á sviði heilsugæslunnar næstu ár verði vistunarmál aldraðra. Hór í héraði eru nú 250 ellilífeyrisþegar og heimahjúkrunar njóta 10 og fer sá fjöldi vaxandi. Sá sem gerist ellimóður og ekki fær um að vera lengur heima á ekki um marga kosti að velja. Þrátt fyrir byggingu a Selfossi er ljóst að þörfin er langt umfram framboð á plassum þar. Það1 virðist því vera næsta augljóst, að hór þurfi að byggja elli- og hjúkrunarheimili og það sem fyrst. Heppileg stærð gæti verið 20 til 25 rúm og væri þannig hægt að bjóða flestum er þyrftu og vildu pláss í heimasveit eða sem næst því. Pyrir utan mann- úðar sjónarmið má bæta við, að við slíka stofnun myndi skapast atvinna, sórstaklega fyrir konur. Bið hór með alla, er vilja þessu máli vel að reyna að hafa áhrif á sveitarstjórnarmenn og hvetja þá til dáða. , Ef til vill er þetta bara draumórar á krepputimum en sá sem ekki hefur neitt takmark kemst aldrei langt. LIFIÐ HEIL. Ritað á þorra 1984

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.