Litli Bergþór - 24.02.1984, Blaðsíða 25
-23'
Arni G. Eylands kvað um þingmannl
Leysti um ævi enga þraut
aldrei herti á taumi,
löngum eins og froða flaut
fram á tímans straumi.
Legar aðrir áttu stríð
eða beittu páli,
loforð hans og brosin blíð
brugðust hverju máli.
Um foringjaefnið kvað hann:
Hvar sem þínar leiðir lágu
lést þú rök og stefnu falt.
Þú varst ótrúr yfir smáu
yfir stærra settur skalt.
Fyrir nokkrum árum hélt Sighvatur Björgvinsson því
fram í ræðu að grænlenskt sauðfé skilaði betri fallþunga
og meiri afuröum en það íslenska. Þetta stéðst að sjálf-
sögðu ekki, en af þessu tilefni kvað Hermann Jéhannesson
þingfréttamaður útvarpsins þessa limru:
Hér er sægur af sællegum föllum
Sighvatur ber af þeim öllum.
Mér sýnist ei vafi
að sauðurinn hafi
gengið á grænlenskum fjöllum.
Isleifur Gíslason kvað um afturför sína í ellinni:
Hrakar bæði heyrn og sjén,
sem hafa starfi skilað.
Heilsu minni tel ég tjén
að toppstykkið er bilað.
Og þessa vísu orti Þérður daginn eftir þorrablétið:
I nétt ég fékkst við flöskustútinn
fylltist gleðibrag.
Andlit grett og augu þrútin
angra mig í dag.
SKURÐLISTARSKÓLI
HANNESAR
FLOSASONAR
heldur námskeið í tréskurði á Selfossi í feb.
— mars nk.
Leiðbeinandi verður Þuríður Gísladóttir, sími
2287, sem innritar og gefur nánari
upplýsingar.