Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.10.1950, Blaðsíða 5

Skólablaðið - 01.10.1950, Blaðsíða 5
- 5 - átt er. Slíkar "■bókmenntir” gleypir . æakan í si^ og áhrifin eftir því, Komi hinsvegar út, t.d. listræn, íslenzk akáldsaga, rituð á góðu máli með athyglis- verðu efni og menntaðir lesendur hafa lokið lofsorði á, þá er alveg víst, að þeir eru teljandi, sem "nenna" að lesa i þá hók eða hafa nokkra ánægju af. Al- menningur er yfirleitt hættur að hera skynhragð á það sem hann les og vill ekki þurfa að hugsa neitt út í efnið, Aðeins taka einhvern hráan glæpareyfar- ann, sem er lesinn af miklum ákafa - og síðan hent. Sæmilega skynsamir menn ættu ekki að vera í vafa um, að þessum almenna losarahætti þarf að útrýma skjótt, IV. íslendingar hafa varðveitt hina fornu tungu sína með mikilli sæmd, enda er íslenzkt þjóðerni á allan hátt undir því komið, hvað lengi okkur tekst að varna ^ví, að erlend áhrif nái sterkum tökum a henni. Þessvegna ríður sérstak- lega á því að vera á varðhergi. Vegna samvinnu við erlenda herinn á stríðsár- unum, og síðustu ár fyrir áhrif hinna lólegu amerísku kvikmynda og ýmissa hlaða, er hægt að heyra, hvað íslenzkt mál er orðið spillt og útatað alls kyns málvillum, ambögum og amerískum skríp- yr ðum. á allt það slúður, sem birtist í ýmsum rusltímaritunum, - hvort sem það eru "danslagatextar" (auðvitað á amer- ísku), reyfarasögur eða heimskandi kjaftæði um ameríska kvikmyndaleikara o.s.frv. - ætti að vera óþarfi að minn- • ast. Við þessu og öðru álíka merkilegu gín æskan. En ef slíkt spillir ekki íslenzku æskufólki, ef þetta á ekki þátt í því að draga unglingana frá íslenzkri tungu, áhuga þeirra á að tala og rita sómasamlegt mál, frá fornum hókmenntum, þeim dýrmæta menningararfi, sem heldur heiðri íslands á lofti, og fslendingar eiga að ýmsu leyti þjóðarsjálfstæði sitt að þakka,- þá er mór gersamlega hulið hvað það er. Það er óhætt að fullyrða, að svo er nú komið, að íslenzk æska sekkur ser ekki niður í lestur íslendingasagnanna. HÚn lætur ekki lestur þessara dýrmætu fornbókmennta vorra tefja sig frá vafa- sömu tómstundagamni, Unglingarnir eru,- og verða í enn ríkara mæli með þessu áframhaldi,- algerlega sljóir fyrir lestri þjóðlegra hókmennta, hvort sem það eru fornar eða samtímabókmenntir, eða yfirleitt þeirra verka, sem göfga og hæta einstaklinginn og vekja hann til umhugsunar. f íslendingasögunum skynjum við íslenzka þjóðarsál í þúsund ár. Að fegurð og orðauðgi eru þar svo auðugar, að hver og einn, sem lesið hefur ein- hverja af fornsögunum, getur tekið undir þessar ljóðlínur skáldsins JÓns Helga- sonar í kvæði hans "f árnasafni" j "hvar sem óg fletti, við eyru mór ólguðu og sungu uppsprettulin.dir og niðandi vötn minnar túngu". Ljóðlínur þessar ættu raunar að nsg^-a» þegar nefndar eru fornhókmenntir vorar og íslenzk tunga. Svo mikið felst í þeim, En þegar virðing æskunnar fyrir þessu fjöreggi okkar er á leið norður og niður, hvers er þá að vænta? Útlendingar, sem komið hafa hingað til lands, hafa telcið eftir þessari breytingu á í'^.lendingum og vakið máls á því, hvað hugsunarhátur margra og málfar er gognsýrt af "ameríkanismanum", enda er auðvelt að komast um raun um það. Þannig hefúr mikill hluti fólksins verið heimskaður og þannig verður þro- unin ef ekki er spornað við x tíma. V. Kynslóðin, sem nú er að koipast á 1egg, er sízt verri en hinar fyrri^ en hún er á vafasamri braut, sem mer virðist einsætt, að hún verði að snúa af, fslendingaxhhfa átt stórum saman að sælda við Dani. Tungan smitaðist af dönskum orðum og orðatiltækjum, sem ennþá eimir af eftii' allan þennan tima. Ég tel, að "ameríkanseringin" se langt- um hættulegri, þar sem hún hrýtur sór braut með meiri tækjum en dön3ku áhrif- in á sínum tíma. Smáþ3Óð getur alltaf vænzt þess að verða snortin af erlendum áhrifum enda hafa íslendingar elcki farið varhluta af því. En á svörtustu niðurlægingatímahilum þjóðarinnar varð- veitti hún tungu sína og menningu, þrátt fyrir kúgun á alla lund, og segja má, að hún hafi hognað en ekki brotnað. E. L

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.