Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.10.1950, Page 10

Skólablaðið - 01.10.1950, Page 10
- 10 gnabhksmy nc FRÁ 7 NOV. 155 0 Syrtir á lofti og sortnar í huga, svik eru mögnuð vort land til að buga, kalt er í sinni hjá konungsins mönnum, kaldara en úti í nepju og fönnum, ljósið það dvínar og líður að kveldi landið er myrkvað af konungsirB veldi. Skálholt er sveipað í skugganna Jclæði, skapanorn spinnur þar örlaga þræði varðandi ísland á ókomnum öldum orsök til sor^ar á skammdegiskvöldum, hollvættir frónsins með áhyggju eygja úrslitastundina nálgast - og þreyja. Frelsisins hetjurnar fallnar í dróma feðgar, sem þorðu að gæta vors sóma. óskelfdir börðust gegn erlendu valdi, ógnandi hættu, sem þjóðina kvaldi, notuðu lögin sem skjöld móti skjóma skeyttu ei minnsta um erlenda dóma. Hugdjarfir ennþá í heldimmum klefa harmanna ásókn með lofkvæðum sefa syn^ja til heiðurs síns himneska föðui- hljomurinn fellur sem ólgandi löður nístandi steypist um föðurlands fjendu£, fulltrua konungs með saurgaðar hendur. Öryggið, tryggðina, íslenzka þorið ómurinn bergmálar - frelsið og vorið þjóðar,sem stöðugt { vök á að verjast viljug að neyta síns kraftar og berjast, hafi hún foringja vakandi á verði veitir hún bæði með orði og sverði. Jón M, Samsonar,

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.