Litli Bergþór - 01.05.1990, Page 4
Umhverfis jörðina .. . ( 2. þáttur.)
Lítil ferðasaga í nokkrum þáttum
eftir Geirþrúði Sighvatsdóttur
á Miðhúsum.
Geirþrúður.
menn mest megnis að ferðast fótgangandi og
flytja allt á sjálfum sér eða á múlösnum, upp og
niður snarbrattar fjallshlíðamar. Gönguferðir
upp í fjöllin eru vinsælar af ferðamönnum og við
vorum staðráðnar í að ráðast í eina slíka. Völdum
þó frekar létta og fjölfama leið, enda ekki búnar
til háfjallaklifurs.
I Kathmandu vomm við í viku. Urðum okkur
úti um fjallgönguleyfi, og leigðum okkur
dúnjakka, tjalddýnur og hlýja svefnpoka, þvíþað
getur orðið kalt uppi í fjöllunum á þessum árstíma.
Síðan var keyrt í rútu til Pokhara, smáborgar,
tæplega 200 km norðvestur frá Kathmandu.
Pokhara liggur á fallegum stað, í um 600 m hæð
yfir sjó. Yfir borgina gnæfir Machamputra, sem
oft hefur verið kallað Matterhom Nepals, og fjær
fjöllin Annapuma Nilgiri og Dauhlagiri, sem öll
em yfir 8000 m há.
Fjallgangan
Frá Pokhara lögðum við af stað fótgangandi
eftir merktri gönguleið í áttina til Jomosom, sem
er lítið fjallaþorp uppundir landamærum Tíbet.
Fyrstu dagamir vom nokkuð erfiðir fyrir okkur,
óþjálfuð borgarbömin, þó að bakpokamir væm
ekki nema 10-12 kíló. Enda lá leiðin upp og niður
fjallshryggi. Fórum m.a. yfir skarð í 3000 m hæð.
Gatan var víðasthvar vel hlaðin og af og til
mættum við berfættum Nepölum með stórar körfur
á bakinu, sumir hverjir eflaust á leið til þorpa, 5-
10 dagleiðir í burtu. - Með Coca-Cola og appelsín
í glerflöskum til að selja túristunum, sem frílista
sig þar uppfrá! - Oftast eru þyngri byrðar þó
fluttar á hestum eða múlösnum, sem feta sig
örugglega eftir þröngum krákustígum fjallanna í
löngum lestum. Sá fremsti gjarnan skreyttur með
skrautfjöðmm, bjöllum og öðru glingri. Þorpin
eru flest staðsett uppi á fjallshryggjunum, það
verður skiljanlegt þegar monsúnregnið með
tilheyrandi vatnselg og skordýraplágum herjar á
landið. Allt flatlendi er nýtt til ræktunar og
Við flugum til Kathmandu, höfuðborgar Nepal,
frá Patna í Indlandi. (Þar sem sögunni sleppti í
síðasta blaði). Vorum ennþá ríkar og þótti
ómaksins vert að veita okkur þennan munað, í
stað þess að keyra í rútu einn dag. Það var léttir
að komast til Nepal, í hreint fjallaloftið, eftir
fyrstu reynslu okkar af Indlandi. Nepal er fjöllótt
land, (lítiðeittstærraenísland,) sunnaníHimalaya
fjallgarðinum, þar sem hæstu fjöll veraldar gnæfa
snæviþakin yfir sléttur Indlands. Ægifagurt, eink-
anlega í tæru haustloftinu, eftir að monsún-
rigningamar hafa hreinsað burtu mistrið. Fólkið
virtist okkur vera miklu glaðlegra og stoltara en í
Indlandi, og það var mikill munur að vera nær
laus við betlarana. Húsin virkuðu sem hallir eftir
indversku leirkofana, þó þrifnaður og aðbúnaður
væri ekki upp á marga fiska á vestræna vísu. - í
mínum huga hafði Nepal alltaf verið sveipað
dýrðarljóma , síðan ég las “Brött spor” Edmund
Hillarys. Söguna um það, þegar þeir fyrstir
manna klifu hæsta fjall veraldar, Mt. Everest. Það
var því með töluverðri eftirvæntingu sem ég
heimsótti landið.
Um 17 milljónirmanna, af ýmsum kynþáttum,
búa þarna. Flestir dreifðir um fjalllendið þar sem
þeir lifa mjög fábrotnu og frumstæðu lífi.
Vegakerfi er af skornum skammti. Einn vegur
liggur eftir landinu endilöngu, þar fyrir utan verða
Gauja í Pokhara. Fjallið
Machampulra íbaksýn.
Litli - Bergþór 4