Litli Bergþór - 01.05.1990, Blaðsíða 24
Sala stólsjarðanna ...frh.
einn bóndi í sjálfsábúð á um 1/6 hluta jarðarinnar
og tveir leiguliðar.
Kúgildi eru 4 og kaupir Gunnar Egilsson bóndi í
Auðsholti þau á 4 rd. hvert.
25. Höfði. Kaupandi er Jón Bjamason bóndi á
Kópsvatni. Hann býr þar 1801 og er kona hans
Cetalia (skrifað eins og í manntali) Katrín
Jónsdóttir. Jón er líklega kominn að Höfða 1816
og er 73 ára. Kona hans er þá Steinvör Jónsdóttir
og er hún 20 árum yngri en hann. Um 30 árum
síðar eru tvenn hjón búandi þar og eru hvort
tveggja fædd í Hrunasókn. Ekki er þó að sjá að
neitt þeirra sé afkomandi kaupandans, enda er
jörðin talin í ábúð tveggja leigjenda um það leyti.
Kúgildi eru 2 og kaupir Hannes biskup Finnsson
þau á rúma 4 rd. hvort.
26. Hrosshagi. Hann kaupir Jón Þórðarson í
Stritlu. Hann býr þar 1801, og erkona hans Mar-
grét Þorsteinsdóttir. Ekki veit ég meira um þau,
og er þessi jörð í leiguábúð um hálfri öld síðar.
Jörðin hafði verið boðin upp 1788 en seldist ekki.
Kúgildin eru 3, en ekki er greint frá sölu þeirra.
27. Revkiavellir. Þá kaupir Jörundur Ólafsson í
Landakoti á Alftanesi (sjá Miðhús). Á jörðinni er
leiguliði um hálfri öld síðar.
Kúgildi eru 3, og kaupir Guðmundur Magnússon
í Austurhlíð 1 þeirra á 5 rd. og 74 sk. Ekki er getið
um sölu hinna.
28. Litla-Fliót. Það kaupir Hannes biskup Finns-
son (sjá Helludal). Hér eru tveir leiguliðar um
hálfri öld síðar.
Kúgildi eru 3 og kaupir sá hinn sami þau á 4 rd.
hvert.
29. Stóra-Fliót. Það kaupir SigríðurÞorsteinsdóttir
á Móeiðarhvoli (sjá Austurhlíð). Tveirleiguliðar
eru hér um hálfri öld síðar.
Kúgildi eru 3 og mun sú sama hafa keypt a.m.k.
eitt þeirra.
30. Fell. Það kaupir ábúandinn Gissur Jónsson.
Kona hans var Guðný Sveinsdóttir, og var dóttir
þeirra Kristín, sem var móðir Guðmundar,
Gissurar og Diðriks Diðrikssona (sjá Neðradal).
Tvö börn þeirra hjónaem búandi hér 1816. Ekki
mun jörðin hafa haldist lengi í ættinni því um 30
árum síðar er þar einn leiguliði.
Kúgildi eru 3, og kaupir Gissur þau einnig á 4 rd.
hvert.
31. Fellskot. Kaupandi er Jón Guðmundsson í
Bræðratungu. Hann mun verabúandi ekkjumaður
þar 1801, og er ekki að sj á að hann eða afkomendur
hans hafi flutt á kaupajörðina. Um hálfri öld síðar
er þar einn bóndi í sjálfsábúð og mun hún þá
komin í eigu forfeðra núverandi eiganda.
Kúgildi eru 2 og mun Jón hafa keypt þau á 6 rd.
og 48 sk. hvort.
32. Vatnslevsa. HúnersleginábúandanumEinari
Halldórssyni. Konahans er Steinunn Bjarnadóttir,
og meðal bama þeirra eru Halldór og Guðmundur,
sem báðir bjuggu á Vatnsleysu.
Dóttir Halldórs var Margrét í Bræðratungu og
sonur hennar Halldór í Hrosshaga dóttir hans
Þorbjörg áLitla-Fljóti en sonur hennarer Halldór
Þórðarson á sama stað.
SonurHalldórs varMagnús áMiðhúsumog sonur
hans Halldór í Ásakoti faðir Margrétar móður
Ragnars Braga Jóhannessonar og þeirra systkina.
Jörðin mun hafa verið í nærri hálfa aðra öld í eigu
afkomenda þeirra er hana keyptu. Þó er í Jarðatali
Johnsens sagt að 2 ábúendur séu eigendur að
hálfrijörðinni. (“2eig. að 1/2j.”) Ef til vill vantar
þar “hvor”.
Kúgildi eru 3 og kaupir Einar þau einnig á 4 rd.
hvert.
33. Holtakot. Þau kaupir Ambjörn Ögmundsson
á Hrafnkelsstöðum. Kona hans er Þómnn Jóns-
dóttirogbúaþauíTungufelli 1801 enáHrafnkels-
stöðum 1816, og er ekki að sjá að þau eða neitt af
börnum þeirra hafi flutt á jörðina. í jarðatali
Johnsens er hér einn leiguliði.
Kúgildi em 2, en ekki er getið um sölu þeirra.
Litli - Bergþór 24