Litli Bergþór - 01.05.1990, Side 8
H
H - Listi óháðra.
H listinn
eftir Drífu Kristjánsd.
2. mann á H lista.
Eins og öllum er kunnugt birtist stefnuskrá
H listans 9. maí en þá var hún send á hvert
heimili í Biskupstungunum. Ekki þykir því
ástæöatil aö hafa hana héren í staðinn skrifa
stuðningsmenn og frambjóöendurgreinarum
sín hugðarefni.
Þess er skemmst aö minnast aö fjögur ár
eru nú síðan listakostning komst á í Tung-
unum.oavarðsvoveanaframboðsH listans.
Listafyrirkomulagið hefur tvímælalaust
sannað sitt ágæti og því riðum við enn á vaðið
og lögðum fram lista, fyrir þessar kosningar,
fyrst allra. Við komum fyrst allra með
stefnuskrá og framboð okkar var úthugsað
og vandvirknislega unnið. Við höfðum
forkosningu þar sem öllum var frjálst að
raða frambjóðendum á sjö efstu sæti listans.
í forkosningu okkar valdist fólk sem tilbúið er
til að takast á við sveitarstjórnarmál. Það ann
Biskupstungunum og hugsarsérað búa hér
áfram. Það er með ferskar hugmyndir, jákvætt
hugarfar og vill viðhafa fagleg vinnubrögð í
allri stefnumótun og ákvarðanatökum.
Við stefnum að því að fjölga fulltrúum okkar
í hreppsnefnd. Við stöndum saman einhuga
og komum þvísterktil leiks. Okkarstyrkurer
m.a. að við vinnum opið og viljum ekkert
baktjaldamakk né hrossakaup af neinu tagi.
Atkvæði allra vega þungt og því er mikilvægt
að nota þau og koma á kjörstað og kjósa
þann 26. maí n.k.
Atvinnumál
eftir Kristófer Tómasson
4. mann á H lista
Grundvallaratriði hvers byggðarlags hlýtur
að vera að næg atvinna sé til staðar fyrir
íbúana. Þetta sveitarfélag hefur ekki farið
varhluta af samdrætti í hefðbundnum
landbúnaði og ekki er ólíklegt að enn frekar
þurfi að draga saman seglin á því sviði. Við
þurfum því að hafa okkur öll við til að sporna
við fólksfækkun ísveitinni og byggja upp fleiri
atvinnutækifæri. Við erum viss um að í
ferðamálum sé stór akur óplægður því
ferðamannastraumur er meiri um þessa sveit
en flestar aðrarsveitir landsins. Enda eigum
við marga athyglisverða og sögufræga staði.
Því miöurhafa nágrannasveitirnar náð nokkru
frá okkur hvað þjónustu við ferðamennina
varðar. Þarna þuilum við að sækjaá og veita
ferðamönnumeinsmiklaogvíðtækaþjónustu
og hugsast getur.
Stétt iðnaðarmanna þarf að efla í sveitinni
án þess að hallað sé á þásem fyrireru. í þetta
stóru sveitarfélagi eru alltaf einhverjar
framkvæmdir í gangi, vil ég þar benda ásmíði
og viðhald á sumarbústöðum sem fjölgað
hefur mjög að undanförnu og mun vafalaust
fjölga mikið enn. Æskilegt er, að sem minnst
þurfi að leita 'út fyrir sveitarmörkin eftir
iðnaðarmönnum.
Litli - Bergþór 8
Jarðhiti er vafalaust eitt mesta stolt þessa
sveitafélags og á stór hluti íbúa sína afkomu
undir honum. Við þurfum að leita allra leiða
til að nýta þessa auðlind til hins ítrasta. Það
erósk mín að sem flestir þeirra bæjasem enn
hafa ekki fengið hitaveitu eignist kost á því
sem fyrst. Við sem höfum notið þess vitum
hvílík bylting og blessun það er.
Ekki er hægt að láta kalda vatnsins ógetið
en það ertil í miklum mæli ávissum stöðum
ísveitinni. Íþvífelast mikilverðmæti. Égbind
vonirviðaðfiskeldi muni rétta úrkútnum. Þá
megumviðtil með aðnýtaþámöguleikasem
eru fyrir hendi þar sem kalt og heitt vatn er.
Við H-listafólk erum opin fyrir hvers kyns
hugmyndum um atvinnurekstur og viljum við
að sveitarfélagið leggi sitt að mörkum til að
álitlegar hugmyndir af því tagi geti orðið að
veruleika. Þó viljum við gæia ítrustu varkárni
hvað fjármögnun varðar og reikna dæmi af
þessu tagi til enda. Því við viljum ekki lenda
í þeirri gryfju að verða ofurseld fjármagns-
kostnaði.
Hér í sveit er að vaxa úr grasi myndarlegur
hópurafunguog upprennandifólki. Þaðáað
vera okkar kappsmál að skapa þær aðstæður
hér í Tungunum að sem stærstur hluti þess
hafi möguleika á að setjast hér að.
Sveitarfélag sem býr yfir öðrum eins
möguleikum og Biskupstungur þarf ekki að
örvænta um sínaframtíð ef rétt eráspöðunum
haldið.