Litli Bergþór - 01.05.1990, Síða 25
z
Greinarhöfundur á "œttaróðalinu" semforfaðir
hans ífimmta lið keyptifyrir 196 árum.
34. Arnarholt. Það kaupir Bjami
Snorrason í Skipholti. Kona hans er
Úlfhildur Jónsdóttir og búa þau í
Haukholtum 1801 en eru komin
hingaðl816. DóttirþeirravarGuð-
rún í Skálholti og dóttir hennar Úlf-
hildur Eiríksdóttir móðir Guðna,
Jóns og Kristjáns Diðrikssona (sjá
Neðradal). Jörðin mun hafa verið
samfellt í eigu afkomenda þeirra er
keyptu hana í u.þ.b. hálfa aðra öld.
Fyrir 6 árum keyptu hana s vo tveir af
þessari ætt. Rétt fyrir miðja 19. öld
er þar einn bóndi í sjálfsábúð.
Kúgildi eru 3 og kaupir Jón Þórðar-
son á Spóastöðum eitt þeirra á 5 rd.
og 32 sk. Ekki er getið um sölu
hinna.
35. Kiaranstaðir. Þákaupir SveinnHalldórsson á
Vatnsleysu. Kona hans er Sólvör Magnúsdóttir
og búa þau hér 1801 en eru farin þaðan 1816.
Meðal barna þeirra var Margrét á Reykjavöllum
móðirIngimundar Ingimundarsonar. Sonur hans
var Ingimundur og sonur hans Björn á
Reykjavöllum. I Jarðatali Johnsens er talinn hér
einn leiguliði.
Ekki virðist hafa fylgt neitt leigukúgildi jörðinni.
36. Ból. Það kaupir Guðmundur Magnússonar
bóndi í Austurhlíð (sjá Brekku). Magnús sonur
hans, sem hann mun hafa átt með fyrri konunni,
mun búa þar 1816, en undir miðja öldina mun hún
ekki lengur í ábúð afkomenda þeirra, og þar er þá
talinn einn leiguliði. Sonur Magnúsar var Hall-
grímur á Tjöm og sonur hans Bjami á Krók, en
dóttir hans var Hólmfríður móðir Óskars
Jóhannessonar á Brekku og Jóhannesar föður
Magnúsar Heimis á Krók.
Kúgildi eru 3 og virðist Guðmundur hafa keypt
1 þeirra á 6 rd. og 26 sk. Ekkert kemur fram um
sölu hinna.
37. Tiörn. Hana kaupir Eyvindur Jónsson á
Skógtjöm á Alftanesi. Hann mun vera dáinn
1801 en ekkja hans, Anna Rasmusdóttir, býr þá
á Skógtjöm með tveimur dætrum sínum, sem
báðar heita Guðrún. Ekki sé ég nein frekari
tengsl hingað og um hálfri öld síðar er hér einn
leiguliði og “undir er talin eyðihjáleigan
Tjamarkot.”
Kúgildi eru við söluna 5 og kaupir Eyvindur 4
þeirra á rúma 4 rd. hvert en “ 1 kúgildi sem stóð
inni hjá séra Halldóri á Torfastöðum frá því hann
bjó á Tjöm var slegið honum á 4 - 4.”
Heimildir.
1. Skrá yfir sölu Skálholtsstólsjaröa frá 1785. Biskupstungnahreppur.
2. Jarðatal Johnsens.
3. Jarðabók A.M. og P.V. Árnessýslu.
4. Manntal á íslandi 1801 Suðuramt.
5. Manntal á íslandi 1816 (og 1823).
6. Manntal á íslandi 1845 Suðuramt.
7. Inn til fjalla II., Hjónin á Brekku og Manntal í Biskupstungum 1850.
8. Inn til fjalla III., Manntal í Biskupstungum 1. nóvember 1901.
9. Ætt Guðmundar Guðmundssonar bónda á Stærribæ, síðar í Arnarholti í Biskupstungum.
10. Bergsætt III.
A.K.
Litli - Bergþór 25