Litli Bergþór - 01.12.2009, Page 4
Formannspistill
Heimsmeistaramót í glímu og hryggspennu fór
fram að Geysi í Haukadal 22. og 23. ágúst síðastliðinn.
Keppnin gekk vel fyrir sig og þess má geta að tveir
Tungnamenn tóku þátt í -81 flokki, þeir Rúnar Björn
Guðmundsson sem varð þriðji og Smári Þorsteinsson
sem varð fimmti, ennfremur varð Jóna Sigríður
Guðmundsdóttir fjórða í opnum flokki kvenna. Samúel
Birkir Egilsson varð þriðji í -100 flokki í hryggspennu.
Til hamingju með það. Við þetta tækifæri var einnig
afhjúpuð stytta til minningar um íþróttaskóla Sigurðar
Greipssonar í Haukadal.
Þann 13. ágúst kallaði Hafsteinn Þorvaldsson til
samkomu í Tíbrá á Selfossi. Tilefnið þess var að hann
vildi minnast konu sinnar, Ragnhildar Ingvarsdóttur,
sem hefði orðið áttræð þann dag, en hún lést 16.
des.2006. Hafsteinn útdeildi þarna einni milljón króna
til þriggja ungmennafélaga og HSK. Ungmennafélag
Biskupstungna fékk þar í sinn hlut 100.000 kr. sem við
erum afar þakklát fyrir og þann hlýja hug til gamla
félagsins sem Hafsteinn sýnir með þessu móti. Ég fór
að velta því fyrir mér á leiðinni heim eftir þessa kvöld-
stund hversvegna Hafsteinn skyldi vera að útdeila
þessum fjármunum til ungmenna- og æskulýðsstarfs.
Jú það er örugglega vegna þess að í gegnurn líf sitt og
starf hefur hann komist að því, að sú samleið og það
veganesti sem hann fékk innan ungmennafélagshreyf-
ingarinnar, og hann naut svo vel á sínum tíma varð
honum til góðs. Hann horfir nú til baka með þ,akklæti
fyrir að hafa tekið þátt í svo uppbyggilegu starfi sem
þessu. Hann setti saman þessa vísu;
Vandinn er veginn að stika
vegleysur forðast skalt.
Æskan er auðlegðin mikla,
orðsporið þúsundfalt.
Æskan er „íslandi allt“.
Ungmennafélagið hefur látið smíða fallegan skáp
sem geymir muni sem félagið á og vill að séu sýni-
legir. Skápnum var valinn staður í íþróttamiðstöðinni
okkar í Reykholti.
Ég ætla ekki að fara að tala um þá erfiðleika sem
nú eru í gangi í þjóðfélaginu en bið fólk að huga að
því að æskan okkar verði ekki illa fyrir barðinu á
neikvæðri umræðu og þrengingum. Reynum þess í stað
að halda úti öflugu íþrótta-, æskulýðs- og félagsstarfi í
samfélaginu.
Með kveðju,
Guttormur Bjarnason, formaður
Tttkwn að okkur «11« kyggingastartsemi
Sumarhúsasmídi
og -þjónusta
Höfum minigröfu með brotfleyg
og skotbómulyftara með körfu
Þorsteinra Þórarinsson húsasmíðameistari
Litli Bergþór 4