Litli Bergþór - 01.12.2009, Blaðsíða 15
prestinn með messur og eins í sambandi við sumartón-
leikana, það er að sjá um þrif á kirkjunni og sjá um að
allt sé í góðu lagi en hafa annars samband við mig ef
það er eitthvað sem þarf að lagfæra. Ég sé til þess að
þau tæki og tól sem þarf að nota við slátt og umhirðu
séu í lagi og að því sé sinnt. En á veturnar þegar að
kirkjuverðir eru ekki héma þá sjáum við um þrifin, séra
Egill leitar þá til mín í sambandi við kirkjuna ef óskað
er eftir minni aðstoð en sóknarprestur heldur utan um
bókanir í kirkjuna.
Sú vinna sem viðkemur kirkjunni gengur yfirleitt
fyrir og þarf ég stundum að hliðra til mínum verkum til
að geta sinnt því. Kirkjubóndi eins og ég þarf að taka
heilmikið tillit til þess að hann býr á stað sem þess-
um, hann þarf að haga vélaumferð í samræmi við það
sem fram fer á staðnum. Ég þarf að taka tillit til þess
hvar ég bý og haga mínum verkum þannig að það sé í
fulkominni sátt við staðinn. Sambúðin við staðarfólk
hefur gengið mjög vel og alveg ágreiningslaust.
Mér finnst undantekningalaust gaman að búa hérna.
Það eru forréttindi að fá að vera með fjölskyldu sinni á
þessum fallega stað í tengslum við náttúruna, dýrin og
umhverfið.
Við þökkum Guttormi kœrlegafyrir viðtalið og
óskum honum og fjölskyldu hans alls liins besta.
S.T.
Vísur eftir Halldór Þórðarson á Litla-Fljóti
Fyrsta koma á heilsuhælið í Hveragerði,
kom eftir kvöldmat og var ekkert boðið.
Hér er fátt um fínan drátt
fremur bágt til veiða.
Er því dátt að eyða nátt
einn við hátt að seiða.
Kvöld
Degi hallar daprast sjón,
drýgjast skugga fjöldin.
Ekki hef ég af því tjón
inni að sitja á kvöldin.
Leir
Lekur héma leir úr penna
látið ykkur þola það.
Ekki skal ég öðrum kenna,
eðalvísur festa á blað.
Á Syndinni
Inn á Synd við engilmynd
augna yndi festi.
Örvast girnd og ástin blind,
uppi á tindi hvessti.
Bjamabúð Reykfioítí.
Verslun og bensínafgreiðsla
Opið alla daga frá 9:00 til 18:00
Laugardaga og sunnudaga 11:00 til 18:00
Allar almennar matvörur og olíur
15 Litli Bergþór