Litli Bergþór - 01.12.2009, Qupperneq 7
Sungið fyrir Berlínarbúa
Berlínarferð Skálholtskórsfélaga 4. - 9. júní 2009.
Aðdragandi.
Eftir kveðjutónleikana, sem haldnir voru 27. september
2008 til heiðurs Hilmari Erni Agnarssyni, kórstjóra og
organista í Skálholti í nær tvo áratugi, var organistalaust í
Skálholti og við kórfélagar í Skálholtskórnum því í örlitlu
tómarúmi. En Hilmar lét okkur ekki lengi vera í lausu
lofti. í heimsókn hjá honum var Elísabeth Keiser, þýskur
organisti og kórstjóri frá Berlín, sem hafði áhuga á að efna
til þýsk-íslenskrar menningarviku vorið 2009 í kirkjunni
sinni, Gethsemanekirkjunni í Berlín, sem er vinsæl til
tónleikahalds. Eftir að hafa upplifað kveðjutónleikana
vildi hún fá kóra Hilmars, Skálholtskórinn og Kammerkór
Suðurlands til að vera með tónleika, sinn í hvoru lagi og
með hennar hundrað manna kirkjukór. Auk þess myndu
íslenskir og þýskir hljóðfæraleikarar taka þátt í tónleikum
og uppákomum.
Kammerkórinn treysti sér reyndar ekki, þegar á hólm-
inn kom, til að vera með vegna fjárskorts, en Skálholts-
kórinn átti enn í sjóði eftir síðustu kórferð og hafði auk
þess bætt í sjóðinn með kirkjusöng og réttaballsfjáröflun,
svo við ákváðum að slá til og halda í söngferð til Berlínar.
Ferðatími var ákveðinn 4.-9. júní 2009 og ekki var
ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur þegar kom að
verkefnavali. Flytja skyldi tvær messur með þýska
kórnum, annars vegar Brynjólfsmessu Gunnars
Þórðarsonar, sem við þekktum reyndar vel og höfðum
flutt nokkrum sinnum áður og hinsvegar Berlínarmessa
Arvo Párts, sem er yndislegt verk, en reyndist snúnara en
virtist við fyrstu sýn! Fór mestur hluti æfingatímans síðast
liðinn vetur í þá ágætu messu. A seinni tónleikum okkar
var ákveðið að flytja íslenska tónlist úr þeim sjóði
tónlistar sem við höfðum æft í gegnum árin.
Við sömdum við Hilmar um að æfa okkur einu sinni í
mánuði fram að ferð, en æfingar urðu reyndar þéttari
þegar leið á vor og þar kom hún Tobba okkar, Þorbjörg
Jóhannsdóttir frá Stóra-Núpi, sterk inn og raddæfði kórinn
milli æfinga Hilmars. En hún kom með okkur út sem
kórfélagi.
Annar skemmtilegur vinkill í undirbúningi ferðarinnar
var að finna út úr því hvaða hljóðfæraleikarar myndu
koma með okkur. Var það að lokum mikið einvala lið sem
hélt með okkur til Berlínar, eða þeir Hjörleifur Valsson
fiðluleikari, Þorkell Jóelsson homaleikari, Kári Þormar
organisti og píanóundirleikari í mörgum kórferðum okkar
og síðast og ekki síst Eggert Pálsson pákuleikari
Sinfóníuhljómsveitarinnar, sem reyndist líka liðtækur
partýspilari og eðalbassi. Voru þeir íslandi og okkur
kórfélögum til sóma á tónleikum og miklir gleðigjafar og
stuðboltar í ferðinni og frábært að hafa þá með.
Kórferðin
Loksins var komið að brottfarardegi, fimmtudeginum
4. júní 2009. Tuttugu og fjórir kórfélagar, hljóðfæra-
leikarar, nokkrir makar, Gunnar Þórðarson tónlistarmaður
og frú og 25 kg af golþorski mættu í Leifsstöð á skikkan-
legum tíma, kl 14.20. - Golþorskurinn, (sem var reyndar
Gethsemanekirkjan í Berlín.
frosinn og vel inn pakkaður) var nýveiddur af Hallgrími á
Miðhúsum, og umsamið að við leggðum hann til sem
íslenskt hráefni í sameiginlega matarveislu, sem halda
skyldi eftir íslensku tónleikana í Berlín.
Ferðanefndin, þær Heiða og Osk höfðu undanfarna
mánuði eytt ófáum stundum í leit að ódýru flugfari og
ódýru og góðu hóteli í Berlín og bóka og redda fram og til
baka, milli þess sem þær útbjuggu „nestispoka" fyrir
hvern og einn með ýmsu nytsamlegu og skemmtilegu fyrir
ferðina. Var það afhent við mikla kátínu í Leifsstöð fyrir
brottför. Halldór Páll kom með þessa vísu: (Með tilvísun í
innihald nestispokans.)
Fyrsti morgiminn
Með leyndum draumum ég Ijúflega svaf
en lífið er stundum svo snúið.
Drottinn vor tók hvað Drottinn vor gaf
Durex og Plessure Cream - búið !
I síðustu kórferð Skálholtskórsfélaga, til Ítalíu árið
2007, var átta tíma seinkun á flugi, svo fólk var alveg
slakt. En nú var annar bragur á. Enginn tími fyrir aukabjór
á bamum eða innkaupaleiðangra. Beint út í vél og lagt af
stað á slaginu. Ekki laust við að sumum þætti þetta einum
of mikill asi!
I Berlín tók á móti okkur flokkur kórfélaga úr kór
Gethsemanekirkjunnar, sem lóðsaði okkur um lestar- og
strætókerfí Berlínar á hótelið okkar, Holliday Inn við
Landsbergerallé 203. A flugvellinum beið líka ítalskur
tenór á bíl, sem tók að sér að flytja yngsta ferðafélagann,
ungfrú Hildi Maríu Jóhannesdóttur 8 mánaða og foreldra
hennar, sem og aðra sem ekki voru léttfættir á áfangastað.
----------------------------------- 7 Litli Bergþór