Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.2002, Síða 5
Fréttabréf ættfræðifélagsins í janúar 2002
Einhver ítök mun Björn Magnússon þá hafa átt í
jörðinni því að árið 1634 meðkennir Björn að hann
hafi „gefið“ bróðursyni sínum Guðmundi Jónssyni
20 hndr. í jörðinni Auðshaugi í Brjánslækjarkirkju-
sókn. Þetta gefur Björn upp í löggjöf sína og fyrir
elskusemi og auðmjúka þénustu, sem Guðmundur
hafi jafnan auðsýnt honum, en með því skilyrði, að
þessi 20 hndr. renni aftur til Björns, auðnist
Guðmundi ekki að eignast skilgetið bam.4 Það hefur
gengið eftir, því að Jón sonur hans fæddist árið 1654
samkvæmt manntalinu 1703.5
Til gamans má geta þess að Bjöm ungur sést á
stórri minningartöflu frá Hagakirkju á Barðaströnd,
en sú tafla er nú á Þjóðminjasafninu. Björn er þar
með foreldrum sínum, Magnúsi prúða og Ragnheiði
Eggertsdóttur Hannessonar og systkinum sínum.
Vísast gætu mennimir á prédikunarstólnum sagt
okkur miklu meira um allt þetta fólk, ef við kynnum
að túlka frásögn þeirra . Eg vil benda ykkur á, að þær
mannamyndir, þ.e. myndimar af guðspjallamönnun-
um og Maríu og Jóhannesi, gætu vel átt sér ákveðnar
fyrirmyndir. Guðspjallamennimir bera hver sitt ólíka
svipmót, og klæðnaður þeirra er misíburðarmikill.
Gætu fyrirmyndimar verið ákveðnir kennimenn á
Islandi árið 1617? Það er áleitin spuming, því ég er
nær fullviss um að þau sem standa við kross Krists
eru ekki aðeins María og Jóhannes, eins og hefðin og
skrá Þjóðminjasafnsins vill vera láta, heldur eru þetta
einnig myndir af brúðhjónunum Helgu Arngríms-
dóttur lærða og Bimi Magnússyni sýslumanni sent
giftu sig sama ár og stóllinn var smíðaður.
Altarið úr Flatey
Ég hefi valið að fjalla næst um gamalt altari og leifar
af kirkjuhurð, báðir þessir útskornu gripir eru ættaðir
úr kirkjunni í Flatey á Breiðafirði. Og á altarinu er
ártalið 1742. Þá vitum við að altarið er smíðað af
manni sem var uppi á sitt besta um miðja 18. öld.
Þetta er fágætlega merkilegt og vel smíðað altari,
og hefur verið enn fegurra nýtt með upprunalegum
litum, sem við sjáum aðeins glitta í undir þykkri
málningu.
Ég skrifaði stuttan pistil um þetta altari í bók
Þjóðminjasafnsins „Gersemar og þarfaþing“ árið
1993 á 130 ára afmæli safnsins. Ég eyddi miklu
púðri í að lesa kirkjustól Flateyjarkirkju og leita að
heimildum um þá menn sem komu nálægt kirkju-
smíðinni í Flatey á þessum tíma, það er árið 1742, til
þess að reyna að finna eitthvað um smiðinn og
gefandann. Mér varð talsvert ágengt. Altarið reyndist
tillagt af ungum skólapilti í Skálholti, Eggerti syni
Orms Daðasonar sýslumanns Barðstrendinga. Það
Altarið úr Flatey.
þótti mér ákaflega einkennilegt, því Eggert var
aðeins rúmlega tvítugur og átti ekkert undir sér, að ég
hélt, - nema forríkan föður. Og hvers vegna skyldi
strákur vera að gefa Flateyjarkirkju þetta dýrindis-
altari?
Eggert, þessi sonur Orms Daðasonar og konu
hans Ragnheiðar Þorsteinsdóttur frá Skarði, alinn
upp í Fagradal, var tekinn í Skálholtsskóla 1739, og
varð einmitt stúdent þetta sama ár, 1742, þá 24 ára
gamall. En þann vetur hafði Eggert gert ungri stúlku
bam. Stúlkan hét Helga Gísladóttir og var að mig
minnir þjónusta í Skálholti. 25. janúar 1743 er
Eggerti veitt uppreisn fyrir bameignabrot. Ætli að
það hljóti ekki að vera tengsl á milli þessarar
stórgjafar til kirkjunnar í Flatey og þessa bameignar-
brots skólapiltsins og uppreisnar hans? Eggert
kvæntist síðar frænku sinni, sýslumannsdótturinni
frá Skarði, Þorbjörgu dóttur Bjarna ríka Péturssonar,
gerðist prestur í Selárdal og bjó þar rausnarbúi til
dauðadags.
Þegar altarið góða kom í Flateyjarkirkju nýsmíð-
að árið 1742, treystu menn sér ekki til þess að meta
það til fjár, en í prófastsvísitasíu tveimur árum síðar
er það virt af tveimur valinkunnum mönnum á 10
ríksidali sem voru heilmiklir peningar. Smiðsins er
hvergi getið.6
4 Jarðabréf frá 16. og 17. öld, s. 122.
5 Manntal á íslandi 1703, s. 188.
6 Gersemar og þarfaþing, Reykjavík 1994, s. 42-43.
http://www.vortex.is/aett
5
aett@vortex.is