Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.2002, Side 10
Fréttabréf ættfræðifélagsins í janúar 2002
Oddur Friðrik Helgason ættfræðingur. Myndin var
tekin í sal Þjóðskjalasafnsins 22. nóv. 2001 er hann hélt
erindi sitt „Staða og framtíð íslenskrar ættfræði.“
Ljósm. Olgeir Möller.
í bókunum, heldur tekið röngu upplýsingamar án
athugunar og án þess að geta heimildar.
Stundum stafa villur í ættfræðibókum að því er
virðist af slælegum prófarkalestri, t.d. ættu menn að
sjá að ekki stenst að stúlka eignist bam 11 ára.
Ég hef lagt til að Erfðagreiningarfyrirtækin stofni
sjóð til að styrkja íslenska ættfræði og að menn
standi saman um að verja þessa elstu fræðigrein
Islendinga, hún verður ekki stunduð af viti nema í
samvinnu við þjóðina og í sátt við þjóðina. ORG var
stofnað með það að markmiði að allir Islendingar
geti fengið upplýsingar um ættir sínar á hóflegu
verði og vil ég að fyrirtækið verði sjálfseignar-
stofnun, ættfræðirannsóknarmiðstöð íslendinga sem
óháð verði öllum nema þjóðinni. Skilningur á
þessum málum fer vaxandi en hann er nokkuð dýru
verði keyptur. Hér hafa verið stofnuð fyrirtæki um
ættfræðina af græðgi einni sarnan og forystumenn-
irnir hafa ekki kynnt sér hvernig ættfræði er unnin,
þrátt fyrir varnaðarorð mín. Menn verða að bera
virðingu fyrir fræðigreininni.
Ég hef lagt mikla áherslu á að menn vinni saman
í ættfræðinni. Hundruð manna eiga þátt í grunninum
sem ég er að byggja upp, sjálfur geri ég ekki mikið
annað en að slá inn ættir og bera sanran upplýsingar.
Stundum er ég spurður hvað margir vinni hjá mér og
ég svara því til að þeir séu ekki margir en þjóðin
starfi með mér. A söfn fer ég ekki sjálfur en hins
vegar nota ég símann mikið og nýt aðstoðar góðra
manna við leit að réttum ættfærslum. Þá hef ég gott
samband við mormóna í Utah. Nokkuð hef ég gert að
því að kynna ættfræði á mannfundum og er reiðu-
búinn til þess að leggja meira fram í því skyni og
menn geta fengið hjá mér afrit úr Espólínsafni með
um 30.000 nöfnum. Margir hafa heimsótt mig til að
afla upplýsinga, ung skólabörn og maður sem býr í
Skotlandi og rannsakar skyldleika íslendinga við
skoskar og írskar konungaættir og mun senda okkur
gögn urn niðurstöður sínar.
Um þessar rnundir vinn ég við innslátt á niðja-
tölum eftir héruðum og einnig nokkuð við ábúenda-
töl úr Eyjafirði. Svo vil ég geta þess að lokum að að
öllum ólöstuðum hefur enginn einn maður leiðbeint
mér eins mikið um ættfræðirannsóknir og gagnaleit
eins og Lúðvík heitinn Kristjánsson, ég er [með]
mörg gögn frá honum, á honum margt að þakka.
/ tengslum við erindið sýndi Oddur glœrur þar
semfram komu œttartengsl þekktra tónlistarmanna.
Að erindinu loknu urðu nokkrar umrœður þar sem á
góma bar m.a. rangfeðranir, áreiðanleika grunnsins
sem erfðafrœðirannsóknir eru byggðar á, samstaif
Þjóðskjalasafns og œttfrœðinga ogfleira.
Þakkir
Ættfræðifélaginu hafa borist góðar gjafir. Eru
það 3 bækur, sem Sævar Geir Sigurjónsson,
Helgamagrastræti 53, 600 Akureyri, gefur.
Hann rekur Ættfræðiþjónustuna Ættstoð, sími
461-3044 og netfang sos@simnet.is. Heirna-
síðan er www.simnet.is/sos .
Bækurnar áminnstu eru Ættarlauf úr
Fjörðum, og Ættarlauf úr Fjörðum II, sú fyrri er
niðjatal hjónanna Svanfríðar Kristjánsdóttur og
Hallgríms Sigurvins Grímssonar, sú seinni er
niðjatal hjónanna Guðmundar Kristjánssonar og
Rannveigar Jónsdóttur. Þriðja bókin er
Ættarspor frá Kotungsstöðum, en það er niðjatal
Kristínar Jónsdóttur frá Kotungsstöðum og
manna hennar, Vigfúsar Hjartarsonar og Páls
Eiríks Pálssonar. Sævar Geir Sigurjónsson tók
saman allar þessar bækur og eru þær fáanlegar
hjá honum.
Ættfræðifélagið þakkar Sævari þessa
rausnarlegu gjöf.
http://www.vortex.is/aett
10
aett@vortex.is