Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.2002, Qupperneq 12

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.2002, Qupperneq 12
Fréttabréf ættfræðifélagsins í janúar 2002 Nám og störf A unglingsárum braust Guðni til mennta upp á sitt eindæmi, þótt hann hefði lítið fé handa á milli og þeir sem að honum stóðu væru fátækt fólk. Systir hans Dagmar, sem þá var gift kona í Reykjavík, reyndist honum haukur í homi og skaut skjólshúsi yfir námsmanninn og með styrk hennar og manns hennar tókst Guðna ætlunarverk sitt. Hann hóf nám í Flensborg í Hafnarfirði haustið 1919 og þótti honum mikil og ánægjuleg viðbrigði að koma úr fábreytni sveitarinnar í umhverfi lærdóms og fræðslu þar sem hann komst í tæri við gnótt bóka. Upp frá því urðu bækur, lestur þeirra, söfnun og útgáfa órjúfanlegur þáttur í lífi hans og störfum. Guðni tók gagnfræðapróf frá Flensborg 1921 og settist síðan í fjórða bekk Menntaskólans í Reykjavík. Honum sóttist námið vel en tók jafnframt virkan þátt í félagslífi skólans og gegndi stöðu Inspector scholae síðasta veturinn í skólanum. Guðni vann fyrir sér á sumrin í kaupa- vinnu, meðal annars í Kaldárholti í Holtum, Skarði í Landi og Geitabergi í Svínadal. Hann vann sér jafnvel inn skilding með því að lesa upp og syngja á mannamótum. Guðni var skáldmæltur vel og eru til allmargar vísur og kvæði eftir hann frá skólaárunum. Síðar á ævinni lagði hann ekki eins mikla rækt við skáld- skaparíþróttina eins og hæfileikar hans stóðu til, en orti þó stöku sinnum tækifærisvísur. Til vitnis um list hans má tilfæra vísu þá sem hann orti í tilefni af fimmtugsafmæli Gísla Gestssonar frá Hæli: Hálföldungs í sessi situr, vitur. Fullreyndur aðfornu sýsli, Gísli. Ber sá œttartanga traustan, austan. Lœrður og í lyndi glaður, maður. Guðni varð stúdent árið 1924 og innritaðist í guðfræði þá um haustið. Hann hafði þá þegar bundist verðandi eiginkonu sinni, Jónínu Margréti Pálsdóttur frá Nesi í Selvogi (f. 1906, d. 1936). Voru þau fjórmenningar að skyldleika, bæði af Bergsætt. Þau giftu þau sig árið 1926 og eignuðust þrjú elstu bömin á hálfu þriðja ári. Guðni varð því af fjárhagsástæðum að gera hlé á námi sínu um tíma og réð sig til kennslustarfa í Vestmannaeyjum veturinn 1926-1927. Þá varð honum ljóst að sannfæringar sinnar vegna gæti hann ekki gert prestskap að ævistarfi, söðlaði því um og hóf nám í íslenskum fræðum haustið 1927. Tókst honum með ótrúlegri atorku og harðfylgi ásamt dyggum stuðningi konu sinnar að ljúka meistaraprófi (mag. art.) árið 1930. A háskólaárum sínum fékkst Guðni við tíma- kennslu og ýmisleg ritstörf til að drýgja tekjur heimilisins. Veturinn 1927-1928 rak hann til dæmis kvöldskóla í félagi við Einvarð Hallvarðsson í kjallara Þrúðvangs við Laufásveg og höfðu þeir 20-25 nemendur. Árið 1928 réð Morgunblaðið hann til að þýða greinar og ritdæma bækur og um tíma var hann leikdómari blaðsins. Hann hélt síðan áfram sem ritdómari blaðsins all til ársins 1942. Síðustu tvo vetuma í háskólanum veitti heimspekideild honum hæstu námstyrki deildarinnar og er ekki vafi á að sú fjárhagsaðstoð hefur komið að góðu haldi á lokaspretti námsins. Að loknu háskólaprófi 1930 hóf Guðni kennslu fræða sinna við Gagnfræðaskóla Reykvíkinga og varð fastráðinn kennari þar árið 1933. Kennsla var alla tíð aðalstarf hans. Hann starfaði við Gagn- fræðaskóla Reykvíkinga árin 1928-1957, og var skólastjóri þar frá 1946 til 1957, en þá hét skólinn reyndar Gagnfræðaskóli Vesturbæjar. Hann varð doktor við Háskóla íslands árið 1953 og árið 1958 var hann skipaður prófessor í miðaldasögu íslands og gegndi því starfi til 1967, er hann þraut heilsu. Bjöm Þorsteinsson, samkennari hans við Gagn- fræðaskóla Vesturbæjar og síðar arftaki við háskólann, lýsti kennaranum Guðna þannig að hann hefði aldrei gengið „um garða með brauki og bramli“ en verið „ljúfmannlegur fræðari, fullur velvildar til nemenda sinna og gladdist innilega, þegar þeim famaðist vel.“ Guðni starfaði í ýmsum fræðafélögum, hann var heiðursfélagi Ámesingafélagsins í Reykjavík, forseti Sögufélagsins 1960-1965, formaður Ættfræðifélagsins 1946-1967, í stjórn Hins íslenska þjóðvinafélags 1943- 1956 og var kjörinn í Vísindafélag Islendinga 1959. Þá var hann forseti heimspekideildar háskólans 1959-1961. Útgáfur og ættfræði Þótt kennsla væri alla tíð aðalstarf Guðna hneigðist hugur hans fyrst og fremst að ritstörfum og rannsóknum á íslenskum fræðum og á því sviði tókst honum að afreka ótrúlega miklu. Öll var sú vinna unnin utan hins eiginlega vinnudags, nema síðustu tíu ár starfsævinnar, og því með ólíkindum hvílíku dagsverki hann skilaði. Hann samdi, þýddi, bjó til prentunar og sá um útgáfu á miklum fjölda bóka. Ritskrá verka hans fyllir rúmlega 12 síður í stóru broti og er hann lést 1974 mun enginn Islendingur annar en Halldór Laxness hafa verið http://www.vortex.is/aett 12 aett@vortex.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.