Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.2002, Side 14
Fréttabréf ættfræðifélagsins í janúar 2002
vitnað til. Eins og fram er komið var hann með
ólíkindum afkastamikill. Segja má að hann hafi
goldið fyrir elju sína og ósérhlífni með heilsu sinni
því hann var aðeins 66 ára þegar heilablóðfall
svipti hann starfsgetu það sent hann átti ólifað.
Fram til þess tíma hafði honurn nær aldrei orðið
misdægurt.
Bókasafn Guðna
Auk þess að skrifa bækur og gefa út hafði Guðni
mikið yndi af lestri bóka og byrjaði snemma að
viða að sér bókum í bókasafn sem varð harla stórt
áður en yfir lauk. Eins og eðlilegt var safnaði hann
einkum fræðibókum sem snertu íslensk fræði,
sagnfræði, ættfræði, ævisögur, lögbækur og laga-
söfn (Grágás, Jónsbók, Norske love og Lov-
samling for Island), þjóðfræði og ljóðabækur.
Hann eignaðist einnig Islenskt fornbréfasafn. I
safni hans voru hins vegar fá skáldverk.
Guðni lést 4. mars 1974. Að honum látnum
ákváðu erfingjarnir, eftirlifandi kona hans og
böm, að færa Sagnfræðistofnun Háskóla íslands
að gjöf stærsta hlutann af bókasafni hans, einkum
þær bækur sem gætu gagnast kennurum og
nemendum í sagnfræði. Bókasafninu var fyrir
komið í stofu Sagnfræðistofnunar á fjórðu hæð í
Arnagarði við Suðurgötu og þar hefur það verið
geymt síðan. Það hefur vaxið og dafnað með
innkaupum á nýjum bókum. Þann 7. nóvember
1997 var rannsóknarstofu í sagnfræði gefið nýtt
nafn við hátíðlega athöfn. Var hún í þakkarskyni
skírð Guðnastofa til að heiðurs minningu Guðna
Jónssonar. Rannsóknarstofan í sagnfræði og
bókasafn hennar munu þannig halda nafni Guðna
Jónssonar á lofti um ókomin ár.
Niðurlag
Guðni var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Jónína
Margrét Pálsdóttir svo sem fram er komið. Hún
lést árið 1936 frá fimm bömum þeirra, Gerði, Jóni,
Bjarna, Þóru og Margréti. Tveimur árum síðar
kvæntist Guðni á ný og var síðari kona hans
Sigríður Hjördís Einarsdóttir frá Miðdal í Mos-
fellssveit (f. 1910, d. 1969). Fjögur elstu börnin
voru hjá föður sínum alla tíð og tók Sigríður því
við stóru heimili er þau giftust. Þau Guðni eign-
uðust síðan fjögur börn, Einar, Berg, Jónínu
Margréti og Elínu. Eru niðjar Guðna og eigin-
kvenna hans orðnir 70 að tölu, 93 þegar makar
þeirra eru taldir með, og þar af eru 90 nú á lífi.
I tilefni hundrað ár afmælis Guðna Jónssonar,
22. júlí 2001, komu niðjar hans, Jónínu og
Sigríðar saman að Laugarvatni og áttu þar saman
eina helgi dagana 20. - 22. júlí. Um leið kom út
ritið Aldarminning Guðna Jónssonar 1901-2001,
niðjatal þeirra þriggja með þáttum um ævi Guðna,
Jónínu og Sigríðar, ásamt myndum. Ritið er 64
blaðsíður og kom út í 150 eintökum.
Þeir sem eldri eru og enn muna Guðna Jónsson
minnast jafnan á hann sem Guðna magister. Af
einhverjum ástæðum festist sá titill við hann
umfram aðra þá sem höfðu sömu menntun. I huga
okkar afkomenda hans tengist minningu hans
enginn titill, heldur aðeins björt mynd af hlýjum,
broshýrum og mildum föður og afa.
Heimildir:
Aldarminning Guðna Jónssonar 1901 - 2001. Nokkur œvibrot og
niðjatal. Jónína Margrét Guðnadóttir tók saman. Reykjavík 2001.
Guðni Jónsson: Bergsœtt I- III. Reykjavík, 1966.
Bjöm Þorsteinsson: In Memoriam. Saga XII (1974), bls. 5-11.
Sögufélagið. Reykjavík, 1974.
Jón Guðnason og Guðmundur Jónsson: Bókasafn Guðna
Jónssonar. Frá Sœmundar-Eddu til Guðnastofu. Sjá Aldarminning
Guðna Jónssonar, bls. 62-64.
s
Asmundur Uni
Guðmundsson
Hver er hann, þessi Asmundur Uni, sem svo oft
hefur spurst fyrir um ættir manna í Fréttabréfi
Ættfræðifélagsins? Jafnan fer hann fram á að
menn svari sér þar, vegna þess að hann vill að
fleiri geti notið góðs af svarinu, ef og þegar það
kemur. Hér fer á eftir lítils háttar fróðleikur um
Asmund Una:
Hann fæddist 15. janúar 1931 á Oddsstöðum
í Miðdölum. Foreldrar hans voru Guðmundur
Pálmi Asmundsson bóndi þar og kona hans
Málmfríður Jóhannsdóttir. Uni var við
sveitastörf fram yfir þrítugt og var bóndi í 2-3
ár. Arið 1963 fluttist hann með fjöskyldu sinni á
Akranes og vann síðan í Sementsverksmiðjunni
uns hann hætti störfum fyrir aldurs sakir. Kona
hans er Halldóra Valfríður Elísdóttir, þau áttu 6
börn og eru 4 þeirra á lífi.
Uni komst í kynni við ættartölu eftir Stein
Dofra á unga aldri, síðan lá ættfræðiáhuginn
niðri þangað til fyrir 7-8 árum, en þá fór hann að
taka saman eigin ættir og vinnur núna að því.
RB
Sjá frekar á bls. 21.
http://www.vortex.is/aett
14
aett@vortex.is