Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.2002, Síða 15

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.2002, Síða 15
Fréttabréf ættfræðifélagsins í janúar 2002 Ólafur H. Óskarsson: Dr. Guðni Jónsson Dr. Guðni Jónsson hefði orðið 100 ára gamall á síðasta ári, hefði hann lifað. Hann fæddist 22. júlí 1901 á Gamla Hrauni á Eyrarbakka í Ámes- sýslu, en lést 4. mars 1974 í Reykjavík. Svo mjög er saga Ættfræðifélagsins samofin störfum hans, að rétt þykir að minnast hans nokkrum en fátæklegum orðum. Ættfræðifélagið var stofnað fimmtudaginn 22. febrúar 1945 íLestrarsal Landsbókasafnsins í Reykjavík. Á lokastofn- fundi félagsins 10. nóvem- ber 1946 voru lög þess samþykkt. Svo segir í 2. og 3. grein: „Markmiði sínu hyggst félagið ná m. a. með því - eftir því sem atvik og ástæður eru til: a) að hvetja færa menn til þess að starfa að nefndum fræðaiðkunum í tómstundum sínum; b) að safna saman slíkum fræð- um, sem til eru, og vinna gegn því, að þau glatist á nokkurn hátt; c) að leita aðstoðar og samstarfs ann- arra skyldra félaga, svo og safna og annarra opinberra stofnana, og stuðla að því, að félagsmenn fái greiðari aðgang að heimildum en verið hefur, ennfremur að vinna að aukinni verndun og endurnýjun heimilda; d) að stuðla að aukinni samvinnu og verkaskiptingu þeirra manna og stofnana, sem á einn eða annan hátt starfa að þessum fræði- greinum; e) að halda úti tímariti um þessi efni, gefa út sérstök rit og stuðla að útgáfu rita um ættfræði og skyld efni.“ Dr. Guðni átti sæti í fyrstu stjóm félagsins og átti þar óslitið sæti til 1967, er hann varð að draga sig í hlé vegna veikinda. Hann var formaður félagsins allar götur frá 22. apríl 1946 til 1967, eða rúmlega tvo áratugi. Á þessum árum var félagið að feta sín fyrstu skref, hasla sér völl og finna sér starfsvettvang, eins og segir hér að ofan. Dr. Guðni starfaði ötullega fyrir félagið með þessi markmið í huga, enda segir undirrituðum svo hugur um að hann hafi komið þessum markmiðum á framfæri við stjórn félagsins og fengið þau samþykkt. Mörg þessara markmiða náðust fljótlega, enda fjölgaði mjög ættfræðiritum, sem kornu út á næstu áratugum eftir stofnun Ættfræðifélagsins. Með honum í stjóm var einvalalið, en ekki eru tök á að gera hér grein fyrir öllurn þeim, sem þar lögðu hönd á plóg, en þeir voru margir - jafnt konur sem karlar. í formannstíð hans var m. a. hafist handa við útgáfu manntalsins frá 1816, sem kom út á árunum 1947-1974. Þessum þætti útgáfumála hefur Ættfræði- félagið reynt að gera skil með útgáfum á manntölum. Það má líta svo á að Mann- talið 1816 sé beint framhald af Manntalinu 1703, sem gefið var út 1924-47 af Hagstofu íslands. Þá hélt Ættfræðifélagið áfrarn með Manntalinu 1801 á árunum 1978-80 og Manntalinu 1845 1982-85. Áfram hélt Ættfræðifélagið með Mann- talinu 1910 I Skaftafells- sýslur (1994), II Rangár- vallasýsla og Vestmannaeyjar (1995), III Árnessýsla (1997) og IV Gullbringusýsla og Kjósarsýsla (1998). Stærsta viðfangsefni félagsins í einum áfanga, sem nú er unnið að, verður Manntalið 1910 V-VI, Reykjavík, það kemur væntanlega út í tveimur bindum. Þessi útgefnu manntöl á vegum félagsins eru grund- vallarrit í íslenskri ættfræði, sem ættfræðingar og aðrir, er fást við íslenska ættfræði hafa stuðst við, hafa verið drjúg uppspretta fróðleiks í þeim fræðum. Þá hefur félagið gefið út Fréttabréf Ættfræði- félagsins frá 1983 eins og segir í e) lið laganna og tölublöð eru þegar komin vel yfir eitt hundrað. Guðni við hljóðnema Ríkisútvarpsins. Hann las upp fjölda erinda og sagna í útvarpið, meðal annars Egils sögu sem hann mat umfram aðrar Islendingasögur. http://www.vortex.is/aett 15 aett@vortex.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.