Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.2002, Page 16
Fréttabréf ættfræðifélagsins í janúar 2002
Þó dr. Guðni sé ekki lengur meðal okkar þá
hafa mörg eða flest af þeim markmiðum, sem
lögin frá 1946 og hann átti drjúgan þátt í að
setja, náð framgangi.
Dr. Guðni Jónsson setti ekki eingöngu spor
sín á störf Ættfræðifélagsins, heldur miklu
fremur með sínum eigin ættfræðirannsóknum.
Hann sendi frá sér hið merka ættfræðirit Bergs-
ætt, Niðjatal Bergs hreppstjóra Sturlaugssonar í
Brattsholti, sem kom út í Reykjavík 1932, XVI
+ 439 blaðsíður. „Fyrstu kynni mín af Bergsætt
sem ættfræðilegu viðfangsefni hófust á
háskólaárum mínum. Nám í íslenzkum fræðum,
og vitanlega fyrst og fremst í sögu íslands, er
þannig vaxið, að hjá því verður ekki komizt að
afla sér nokkurrar þekkingar á höfuðættum fyrr
og síðar til aukins skilnings á samhengi sög-
unnar. Fornmenn mátu og viðurkenndu sögulegt
gildi ættvísi og mannfræði og töldu til vísinda
þeirra tíma; voru þau fræði meðal hins fyrsta, er
ritað var hér á landi“, segir dr. Guðni í formála
að Bergsætt.
Eins og áður segir kom fyrsta útgáfa Bergs-
ættar 1932, en árið 1966 sendi Guðni frá sér
aðra útgáfu hennar, sem var þrisvar sinnum
stærri að umfangi, eins og segir í töflunni hér að
neðan:
Karlar Konur Alls
Bergsætt 1932 2.701 2.434 5.136
Bergsætt 1966 8.494 7.757 16.251
„Bergsætt er sú stærsta sinnar tegundar, þ. e.
stærsta niðjatal einstaks manns, sem komið
hefur út hér á landi“, segir og í formála annarrar
útgáfu, en hún er 3 bindi, rúmlega 1500 blað-
síður, með 337 tvídálkasíðna nafnaskrá, sem
segja má að sé lykillinn að ritinu fyrir þá sem
eru að bjástra við ættfræði langt frá frumheim-
ildum. Bergsætt markaði tímamót í vinnu-
brögðum við samantekt ættfræðirita. Bryddaði
Guðni upp á ýmsum nýjungum, t. d. tók hann
upp hagkvæmari merkingu ættliða en áður hafði
tíðkast. „Hver ættingi er merktur með tölu og
bókstaf. Talan táknar ættliðina frá Bergi, en
bóksíafurinn aldursröð systkina“, segir í for-
mála 2. útgáfu. Sé formerki manns t. d. 8d þá er
um að ræða 8. mann frá Bergi og 4. systkin í
röðinni. Þessa merkingu hafa síðan margir
ættfræðingar tekið upp í ritum sínum. Þá gerði
Guðni og góða grein fyrir heimildum sínum að
verkinu og vísaði í ýmis rit til frekari fróðleiks
fyrir þá, sem meira vildu vita um tiltekinn
einstakling eða frændgarð. Því miður hafa
margir ættfræðingar á síðari árum látið hjá líða
að geta heimilda sinna eða vísa í aðrar til frekari
fróðleiks. Stundum læðist að sú tilfinning við
lestur/skoðun ættfræðirita, að einungis sé um
myndaalbúm með mannanöfnum að ræða, en
ekki ættfræðirit. Önnur ættfræðirit eru mjög
öflug og þrungin ættfræði með góðum tilvísun-
um, vísað í heimildir o. s. frv. einmitt í anda
þeirrar stefnu í ættfræðirannsóknum, sem Guðni
Jónsson markaði með Bergsætt.
Ef rétt er munað þá má geta þess til fróðleiks,
að Guðni var upphafsmaður að hugtakinu
„áatal“, sem hefur fest sig í sessi í ættfræði-
ritum.
Aður en seinni útgáfa Bergsættar kom út,
hafði Guðni sent frá sér ritið Bólstaðir og
búendur í Stokkseyrarhreppi, sem var doktorsrit
hans við Háskóla Islands; það hefur að geyma
geysilegan fróðleik um Stokkseyringa,
nægtabrunn ættfræðiupplýsinga, sem oft er gott
að leita til. Síðari bindin, Stokkseyringasaga I
og II komu út 1960 og 1961. Með þessum ritum
sínum um Stokkseyringa, lagði Guðni grunn að
þeim efnistökum, sem síðar hafa verið leiðarljós
þeirra sagnfræðinga og annarra, sem fengist
hafa við að setja saman héraðs- eða byggða-
sögur, sem fjölmörg dæmi sanna.
Ættfræðifélagið stendur í mikilli þakkarskuld
við Guðna Jónsson fyrir stjórnun hans á
félaginu fyrstu tvo áratugina, en hann hafði
tekið við formennsku í félaginu í apríl 1946,
eins og áður segir, en fyrsti formaður þess, Pétur
Zophaníasson, lést 21. febrúar 1946 - og ekki
hvað síst fyrir þau góðu og gagnmerku áhrif,
sem störf hans að ættfræði hafa haft á ættfræði-
iðkun í landinu.
Helstu heimildir:
Kennaratal I og III, 1958, 1985
Bergsœtt 1966, 2. útgáfa, formáli 1966
Heimasíða Ættfrœðifélagsins www.vortex.is/aett.
2001
Aldarminning Guðna Jónssonar, 1901 - 2001
Islenskir samtímamenn, A-J, 1965
http://www.vortex.is/aett
16
aett@vortex.is