Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2007, Page 23

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2007, Page 23
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2007 Af okkar högum er það að seiga þér að okkur líður bærilega fyrir guðsnáð þó efnin sjeu nú lítil þá hafa þau leingst um verið það og því heldur líkindi sem maður verður ónítari að gera alminlegt handarvik. Þó fjekk ég í næstliðið sumar 10 kr á vikuna mjög vel útilátið og hefur það lagast svo við höfum ekki liðið skort í vetur þó heldur hafi þurft að brúka hagnað. Ekki veit ég annað en við verðum hér framveigis ef guð lofar okkur að tóra þó mart sé óþæilegt þá verður ekki á allt kosið Eg held þú hafir lítið gaman af þessu rugli og bið ég þig að forláta það. Berðu kjæra kveðju okkar til dóttur þinnar og manns hennar. Guðrún mín biður innilega að heilsa ykkur mæðgum- Óska ég þér og þínum allra heilla og blessunar um tíma og eilífð. Þinn ónítur bróðir Þ Vigfússon p.s. Eg fékk bréf frá Jóni bróður okkar snemma í vetur var hann þá frískur og lét vel yfir sér. Síðan hef ég ekkert af honum frjett- Ekki hef ég heldur neitt frjett af Vigdýsi systir okkar í vetur og þætti mér mikið vænt um að fá línu frá þér hvernin þér líður og ykkur yfir höfuð. Eins ef þú gjætir eitthvað sagt mér um Dísu systir, vertu blessuð sami Þórarin Guðfinna Ragnarsdóttir: Verðug verkefni í ættfræði 1. Taka viðtöl við eldra fólk úr ættinni, t. d. afa og ömmur, foreldra, föður- og móðursystkin og skrá allan þann fróðleik sem í næst. 2. Skrá gamlar sögur og sagnir sem tengjast ætt- inni. 3. Skrá eigin minningar. 4. Safna saman gömlum fjölskyldu- og ættar- myndum. 5. Taka myndir af heimilum foreldra ykkar. 6. Merkja allar myndir með nöfnum og ártali. 7. Útbúa ættaralbúm sem hefur að geyma sögu fjölskyldunnar og/eða ættarinnar. 8. Tína saman ættargripi, svo sem rokka, kamba, hefla, reipi, hagldir, kistur og kofort, eldhúsáhöld o.fl o.fl, sömuleiðis alla handavinnu og fatnað frá gamalli tíð. 9. Skrá sögu gripanna. Skrá hverjir áttu, smíðuðu, prjónuðu, ófu o.s.frv. 10. Taka myndir af gömlu hlutunum og setja með sögu þeirra. 11. Rekja nöfn ættarinnar, sérstaklega þau sem koma oft fyrir. Athuga uppruna þeirra, hverjir hafa borið þau og hvemig þau berast áfram í ættinni. 12. Safna öllum gömlum bréfum og flokka þau t. d. eftir sendanda eða móttakanda. 13. Safna öllum gömlum skjölum s.s. fæðingar, skírnar- og giftingarvottorðum, einkunnum, umsögnum, líkræðum, húskveðjum, athyglis- verðum kvittunum og minnismiðum. MUNIÐ! ALLT VERÐUR SAGA í FYLLINGU TÍMANS OG ÞAÐ ER OKKAR AÐ VARÐVEITA SÖGUNA OG GERA HANA SEM HEILLEG- ASTA OG FÆRA HANA BÖRNUM OKKAR OG KOMANDI KYNSLÓÐUM. 14. Geyma bréf og vinnubækur ykkar sjálfra og barna ykkar. 15. Varðveita dagbækur og aðrar minnisbækur. 16. Útbúa úrklippubækur með athyglisverðum blaða- greinum, t.d minningargreinum og myndum sem snerta ykkur, fólkið ykkar og samferðafólkið. 17. Skrá ættareinkenni t.d. útlit, kæki, háralit, sér- kenni, skapferli. 18. Skrá sjúkdóma ættarinnar. 19. Skrá veikleika og styrkleika, hæfileika og áhuga- mál ykkar og ættmenna ykkar. Ofangreind verkefni hefur ritstjóri Fréttabréfsins lagt fyrir þátttakendur á Ættfræðinámskeiðum á undanförnum árum, m.a. í Reykjavík, á Selfossi og í Keflavík og birtast þau hér lesendum Frétta- bréfsins til hvatningar og umhugsunar. http://www.ætt.is 23 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.