Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2010, Page 4

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2010, Page 4
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2010 Ljósrit úr afskrift af handriti Björns Bjarnasonar ann- álaritara á Brandsstöðum uni Skeggsstaðaætt. mundsdóttir (f. um 1682) vinnukona á Borgarlæk á Skaga, Þóra Guðmundsdóttir (f. um 1685) vinnukona á Þorbrandsstöðum í Langadal og Þóra Guðmunds- dóttir (f. um 1688) vinnustúlka á Narfastöðum í Viðvíkursveit. Ein þessara kvenna, væntanlega önnur hvor þeirra fyrrnefndu, var móðir Helgu Bjarnadótt- ur (f. 8. júlí 1712, á lífi 1762) húsmóður í Holti í Svínadal, eiginkonu Sigurðar Jónssonar. Eitt barna þeirra var Gísli Sigurðsson (f. um 1738, d. 1780) sem bjó í Holti eftir foreldra sína og er hann sagður hafa verið náskyldur Einari Guðmundssyni (f. nál. 1715, á lífi 1759) bónda á Geithömrum í Svínadal. (Snók. 807 / viðbætur með yngri hendi neðanmáls). Einar verður ekki ættfærður með neinni vissu að svo stöddu, en beinast liggur við að ætla að skyldleikans á milli þeirra Einars og Gísla sé að leita í ætt Þóru Guðmundsdóttur, móðurömmu Gísla, og kynni hún jafnvel að hafa verið samfeðra systir Einars en mun eldri. Ovæntar upplýsingar úr Sýsluskjölum Húnavatns- sýslu XV, 4 og 5 - Dánarbúum 1795-1802 og 1803- 1805 - gera það að verkum að taka þarf hugmyndir um tengsl Bjargar á Skeggsstöðum við Gunnar á Hvalnesi til rótækrar endurskoðunar. I þetta skjala- safn hefur slæðst skjal sem á þar ekki heima efnis- lega, samantekt um ættingja Eyjólfs Gunnarssonar á Strjúgsstöðum í Langadal, sem þá var orðinn bjarg- þrota, en hann var eitt hinna mörgu barna Gunnars Jónssonar á Hvalnesi. í þessu skjali eru tíndir til allir ættingjar Eyjólfs í Húnavatns- og Skagafjarðarsýsl- um, sem mögulega gátu talist aflögufærir, og fæst þar snilldargott yfirlit yfir ættstofninn frá Gunnari á Hvalnesi og þó lengra aftur, því í samantektinni er tilgreint fólk sem var skylt Eyjólfi í fjórða - ef ekki fimmta - lið. Skjalið er hvorki dagsett né ársett, en af heimilisfesti fólksins, sem þar er talið, má sjá að það er skrifað eftir 1800. Þá voru Skeggsstaða- bræður, synir Bjargar, orðnir efnaðir menn og þar sem þeirra er ekki getið í skjalinu, er útilokað að um náinn skyldleika hafi verið að ræða á milli Bjargar á Skeggsstöðum og Gunnars á Hvalnesi. Freistandi er þó að geta sér þess til að einhver tengsl kunni að hafa verið á milli þeirra, en í ljósi framangreindra upplýs- inga verður að ætla að þar muni hafa verið um ein- hverkonar mægðir að ræða en ekki blóðtengsl. Aðrar óvæntar upplýsingar úr Sýsluskjölum Húna- vatnssýslu XV, 5 - Dánarbúum 1803-1805 - kunna að reynast þungar á metunum við lausn gátunnar um ætterni Bjargar á Skeggsstöðum. Við skiptameðferð í dánarbúi Jóns Jónssonar (sk. 7. júlí 1756, d. 1802 eða 1803) bónda á Finnsstöðum á Skagaströnd eru tilgreindir „nánustu náungar“ bama hans, vafalaust þeir sem valist hafa til að ávaxta fé föðurleysingj- anna. Þessir menn vora „á föður síðu“ Jóhannes Jóns- son bóndi á Breiðavaði í Langadal og Jónas Jónsson bóndi á Gili í Svartárdal, föðurbræður bamanna, en „á móður síðu“ þeir Skeggsstaðabræður, Guð- mundur Jónsson bóndi í Stóradal í Svínavatnshreppi, Eyjólfur Jónsson bóndi á Eiríksstöðum í Svartárdal, Einar Jónsson bóndi í Þverárdal á Laxárdal fremri og Eyjólfur Jónsson „þar verandi, þessir og börnin sem þrímenningar." Eiginkona Jóns Jónssonar á Finnsstöðum og móðir barnanna var Ingibjörg Magn- úsdóttir (f. um 1765, gr. 25. ágúst 1825), dóttir hjón- anna Magnúsar Jónssonar (f. um 1737, d. 1814) og Ólafar Ólafsdóttur (f. um 1733, d. 26. maí 1785), sem bjuggu í Harastaðakoti á Skagaströnd 1785. Hlýtur Björg á Skeggsstöðum að hafa verið annað tveggja systir Magnúsar eða Ólafar - líklega fremur Magnús- ar - og þeir Skeggsstaðabræður og Finnsstaðabömin að öðrum og þriðja lið að frændsemi. Að skyldleikinn kunni að hafa legið í gegnum Jón Jónsson bónda á Skeggsstöðum, eiginmann Bjargar, er næsta fráleitt, því hann var aðfluttur í héraðið, upprunninn frá Neðri-Dálksstöðum á Svalbarðsströnd. (Esp. 4758 / viðbætur með yngri hendi neðanmáls). Ekki er að óreyndu ástæða til að rengja þá stað- hæfingu Björns á Brandsstöðum að móðir Bjargar á Skeggsstöðum hafi um eitthvert skeið verið til heimilis á Sneis á Laxárdal fremri, þá vafalaust í hús- freyjusessi. Þegar munnmæli greina frá heimilsfesti fólks, er langlíklegast að fólkið sé annað hvort kennt við þann bæ sem það dvaldist lengst á eða þann bæ sem það dvaldist síðast á, þó frá þessu finnist auð- vitað undantekningar. Húnvetningar em það heppnir að Manntalsbækur sýslunnar hafa varðveist frá árinu http://www.ætt.is 4 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.