Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2010, Qupperneq 12
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2010
Niðjamót
Niðjamót verða æ algengari. Flest eru haldin um
helgar á sumrin oft utandyra að hluta. Þau eru að
sjálfsögðu með ýmsu móti. Oft liggur mikill undir-
búningur að baki með fróðleiksfylltum möppum,
myndasýningum, erindum, kynningum og fleiru.
Sumar ættir halda niðjamót á hverju ári, aðrar einu
sinni og aldrei meir og enn aðrar með óreglulegu
millibili. Oft hvílir undirbúningurinn á einurn eða
fleiri drífandi og ættræknum aðilum.
Fréttabréfið brá sér á niðjamót hjónanna Jóns
Björnssonar (1876-1942) frá Svarfhóli í Staf-
holtstungum og Ragnhildar Jónasdóttur (1880-1967)
frá Sólheimatungu. Þau hjónin eignuðust fjögur börn:
Árna (1909-1968), Rögnu (1910-2006), Ásu (1913-
1996) og Ágústu (fæddl922). Auk þess ólu þau upp
Hönnu Helgadóttur. Jón Björnsson var um skeið
kaupfélagsstjóri í Borgarnesi en stofnaði síðan og rak
verslunina Jón Björnsson & Co, í fyrstu ásamt nafna
sínum og mági Jóni Björnssyni frá Bæ.
Niðjarnir hafa hist óreglulega á nokkurra ára fresti.
Mótið var mjög óformlegt. Pantaður var salur, menn
drukku saman kaffi og spjölluðu. Ungviðið lék sér
saman og margir leituðu í smiðju til Ágústu, yngstu
dóttur þeirra Svarfhólshjóna, en hún er ein á lífi
þeirra systkinanna. Myndum frá liðnum dögum var
brugðið upp á vegginn með skjávarpa. Ættliðirnir
stilltu sér síðan upp til myndatöku.
Fréttabréfið tók tali Kolbrúnu Ástu Bjarnadóttur
sem er fædd 1987. Hún kom með Natalíu dóttur sína
fjögurra mánaða og sagði gaman að geta sýnt hana.
Hún sagði slík mót góð til þess að kynnast ættmenn-
unr sínum og viðurkenndi að hún þekkti alls ekki alla
viðstadda. Aftur á móti þekkti hún mun betur til ættar
föður síns en þar eru haldin niðjamót nær árlega og
þá hefur verið farið á ættarslóðirnar á Vestfjörðum og
gist heilu helgarnar úti á landi.
Niðjahópurinn sem mættur var.
Margir spjulluðn við Ágústu, sem ein
kann hún frá mörgu að segja.
Svarfhóll í Borgarnesi. Þau hjónin, Jón og Ragnhildur, byggðu þetta hús í Borgarnesi
og kölluðu Svarfhól.
http://www.ætt.is
12
aett@aett.is