Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2010, Síða 24
FRÉTTABRÉF
^^TTFRÆÐIFÉLAGSINS
Ármúla 19, 108 Reykjavík, Heimasíða: http://www.ætt.is, Netfang:aett@aett.is
Nýr opnunartími
Þjóðskjalasafns
Á vetrartíma 1. okt. til 20. maí er lestrarsalur-
inn opinn frá mánudegi til fimmtudags
kl. 10:00 til 17:00 og á föstudögum
kl. 10:00 til 16:00.
Á sumartíma frá 20. maí til 1. okt. er lestrar-
salurinn opinn frá mánudegi til fimmtudags
kl. 10:00 til 17:00 og á föstudögum
kl. 10:00 til 14:00.
vT-» *[* vtí ví> 'I' *!' '!' «J» «T» v[» v[» v[» v[» v[» vl» v[» vL» vj» vj» v[» vj» vj» v[» vj» v[» vj»
»Jv »J« »[v »Jv »Jv »Jv »rJv »Jv »Jv »Jv »Jv »Jv »Jv »Jv »Jv »Jv »Jv »Jv »Jv »Jv »Jv »Jv »J» »Jv »Jv »Jv »Jv »Jv
Opið hús
Munið OPIÐ HÚS alla miðvikudaga frá
kl. 17:00-19:00 að Ármúla 19, 2. hæð.
Allir eru velkomnir með spurningar og svör,
áhuga og gott skap. Þar er margt spjallað og
alltaf heitt á könnunni. Munið að þar eru sér-
fræðingar á hverju strái sem elska að tala um
ættfræði og veita fúslega aðstoð.
Nýtið ykkur bókasafnið, tölvurnar og forritin
sem hafa að geyma ótal ættartengsl. Komið og
kíkið í nýjar ættfræðibækur.
Bóksalan er opin á sama tíma og Opið hús.
Það gengur óðum á hin ómissandi manntöl og
þau eru á góðu verði.
STORLÆKKAÐ
VERÐ Á MANNTÖLUM
Nú er lag að kaupa manntölin. Þau eru aðeins til í
takmörkuðu upplagi og verða ekki endurútgefín.
Mörg hefti og bindi eru nú þegar uppseld. Ákveðið
hefur verið að stórlækka verðin á manntölunum svo
allir geti eignast þessi bráðnauðsynlegu hjálpartæki
við ættfræðirannsóknir.
Tilvalið er að gefa jafnt ungum sem öldnum
manntöl í afmælisgjafír.
Verðskráin lítur svona út:
Manntal 1910
1. bindi: Vestur-Skaftafellssýsla, 1.000 kr
2. bindi: Árnessýsla, 2.000 kr
3. bindi: Rangárvallasýsla, 2.000 kr
4. bindi: Gullbringu- og Kjósarsýsla, 2.000 kr
5. bindi Reykjavík 1 og 2, 8.000 kr
Manntal 1845
1 .-3. bindi 1.000 kr hvert bindi
Manntal 1816
6. hefti 500 kr (allt sem til er)
Manntal 1801
3. bindi Norður- og Austuramt 1.000 kr (allt sem til
er)
Hægt er að fá þessi manntöl á skrifstofu félagsins
Ármúla 19 á Opnu húsi sem er alla miðvikudaga
kl. 17:00 - 19:00. Einnig má panta þau í síma
697-6223 eða í tölvupósti á netföngunum aett@aett.
is og gudfragn@mr.is.
AÐALFUNDUR
Fimmtudaginn 25. febrúar verður aðalfundur Ættfræðifélagsins haldinn kl. 20:30 í húsi
Þjóðskjalasafnsins að Laugavegi 162, 2. hæð Reykjavík.
Dagskrá: Almenn aðalfundarstörf
Kaffi og spjall
Marsfundur
Fimmtudaginn 25. mars heldur Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur erindi sem fjallar um þrjár systur sem ólust upp á
biskupssetrinu á Hólum í Hjaltadal á síðasta fjórðungi 16. aldar og lifðu allar fram um og yfir miðja 17. öld. Systurnar voru
skörungar, hver með sínum hætti. Ein þeirra náði meiri formlegum völdum en nokkur önnur íslensk kona fram til þess tíma
og aldir liðu áður en önnur kona hlaut sambærilegan sess. Systurnar settu mark á samtíð sína og enn má greina minjar um
þær og líf þeirra.