Verkakonan - 01.01.1945, Blaðsíða 6

Verkakonan - 01.01.1945, Blaðsíða 6
Afmæliskveðjur Traustir skulu hornsteinar hárra sala Afmœliskveðja Alþýðuflokksins Alþýðuhreyfingin á íslandi hefur átt margar traustar stoðir. Meðal þeirra, er styrkust hefur reynzt, er verkakvennafélagið Framsókn. Þetta félag stóð að stofnun Alþýðusambandsins og Alþýðuflokksins, og hefur alla tíma síðan reynzt öruggt til heillavænlegra átaka. A misjöfnum og oft örðugum tímum hreyfing- arinnar, hefur það aldrei látið lokka sig inn á villi- götur, og alltaf sýnt málefnum stéttar sinnar, og hug- sjóninni, sem barizt var fyrir, fyllsta trúnað og ótrautt fylgi- Það hefur ekki all.taf staðið sérstakur styr um verka- kvennafélagið Framsókn. En þrátt fyrir það, hafa störf þess reynzt mjög giftudrjúg og farsæl. Er það ekki hvað sízt að þakka ágræti forystu þeirra frúnna Jónínu Jónatansdóttur og Jóhönnu Egilsdóttur, sem stjórnað hafa félaginu með sérstökum myndarskap, festu og ör- yggi. Eiga verkakonur í Reykjavík og yfirleitt öll verkalýðshreyfingin, þessum brautryðjendum og for- ystukonum mikið að þakka. A þrjátíu ára afmæli verkakvennafélagsins Fram- sóknar flyt ég því í nafni Alþýðuflokksins hinar beztu þakkir fyrir ómetanlegan styrk og trúnað við málstað alþýðunnar, um leið og ég óska þess, að félaginu megi vel vegna í framtíðinni, og að það verði áfram sem hingað til, öflugur þáttur í íslenzkri alþýðuhreyfingu, í sigursælli baráttu hennar fyrir auknu frelsi, jafnrétti og bræðralagi . Stefán Jóh. Stefánsson. Forystufélag verkakvenna 30 ára Kveðja forseta Alþýðusambands íslands Það var vorið 1913 sem ég vann í fyrsta skipti hér á „eyrinni“, sem kallað er. Eg vann eins og flestir aðrir nýliðar hér og þar og við ýmis konar vinnu, eftir því, sem hún bauðst. Meðal annars komst ég í vinnu við pökkun á þurrfiski inni á Kirkjusandi, en við það starf unnu einnig verkakonur. Ég hygg, að ég hafi þá fyrst gert mér nokkra grein fyrir því, hversu ósæmileg launa- kjör verkakonur áttu við að búa. Karlmannskaupið var þá 35 aurar um klukkustund, en kvennakaupið aðeins 15 aurar. Þetta kaup var konunum skammtað af at- vinnurekendum, því að þá höfðu þær ekki neinn félags- skap til að styðjast við. Þær voru einangraðar, hver í sínu horni, og áttu því ekki annars kost en að sætta sig við það, sem að þeim var rétt. Ég man það ennþá, að ég fyrirvarð mig innilega 1913 út af því, að ég skyldi fá 35 aura um klukkustundina, en konurnar aðeins 15 aura. En svo lét ég við það sitja. Það er gamla sagan, svo óskemmtileg sem hún er. Við sjáum svo sem rangindin og yfirtroðslurnar og viðurkennum þetta, að vísu með sjálfum okkur, og jafnvel hver við annan, en látum svo alltof oft við það sitja, í stað þess að nota tækifærin, sem gefast, til þess að bera réttlætinu vitni. En þó að mér og mörgum öðrum færi ekki stórmann- legar en raun varð á, þá kom þó að því um síðir, að verkakonumar tóku sig saman til að stofna sitt eigið félag. Verkakvennafélagið Framsókn var stofnað 25. okt. 1914. Þetta félag hefur verið sverð og skjöldur verka- kvenna nú um 30 ára skeið, ekki aðeins hér í Reykja- vík, heldur í raun og veru um land allt. Því að það var brautryðjandinn í félagsskap verkakvenna hér á landi. A því mæddu brotsjóir byrjunarörðugleikanna bæði utan frá og innan frá. Það þurfti að sjálfsögðu að heyja byrjunarbaráttu sína við atvinnurekendur til þess að það yrði viðurkennt sem samningsaðili fyrir verkakonur. Og' það þurfti jafnframt að heyja byrjun- arbaráttuna við tómlæti og skilningsskort meðal verka- kvenna sjálfra. Slík er saga verkalýðsfélaganna, sér- staklega hinna eldri. Verkakvennafélagið Framsókn hefur staðið af sér brotsjóina nú í 30 ár og það er von og trú góðra manna að félagið megi enn um langan aldur vinna hlutverk sitt í menningarbaráttu verkalýðsins á Islandi. Guðgeir Jónsson.

x

Verkakonan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkakonan
https://timarit.is/publication/887

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.