Verkakonan - 01.01.1945, Síða 8

Verkakonan - 01.01.1945, Síða 8
Bráðabirgðastjórnin var þannig skipuð: Jónína Jónatansdóttir, formaður. Karólína Siemsen, varaformaður. Bríet Bjarnhéðinsdóttir, ritari. Jónína Jósefsdóttir, fjármálaritari, María Pétursdóttir, gjaldkeri. Þessi sama stjóm var svo kosin óbreytt á fyrsta að- alfundi félagsins í janúar 1915, en þá var María Pét- • ursdóttir varaformaður, en Karólína Siemsen gjaldkeri. MARKMIÐ. Fyrstu lögin segja skýrt til um tilgang félagsins, þ. e. önnur grein félagslaganna, sem svo hljóðar: „Tilgangur félagsins er: 1. Að styðja og efla hagsmuni og atvinnu félags- kvenna. 2. Að koma betra skipulagi á alla daglaunavinnu Jónatansdóttir þeirra. 3. Að takmarka vinnu á öllum helgidögum. 4. Að efla menningu og samhug félagsins.“ Jónína Jónatansdóttir málshefjandi um þetta. Var þessu vel tekið og kosin nefnd til að athuga þetta mál. Ekki varð þó um sinn af félagsstofnun, en nokkrar áhugasamar konur úr félaginu fóru seinna á árinu til helztu atvinnurekendanna og kröfðust kauphækkunar fyrir verkakonur. Vel má gera sér í hugarlund, að þetta hafi þótt nokkuð mikill slettirekuskapur og heimtu- frekja, en þó fór svo, að á næsta vetri hækkaði kaup úr 17—18 aurum á klukkustund í 20 aura. Vorið 1914 héldu svo þessar konur, undir forustu Jónínu Jónatansdóttur, fund með verkakonum og var þá ákveðið að reynt skyldi með haustinu að stofna félag fyrir verkakonur, og var þá sérstaklega átt við þær, sem á fiskstöðvunum unnu, en kola- og saltburður kvenna var þá úr sögunni að mestu. Haustið 1914, 25. október, sem þá bar upp á sunnudag, var kallaður saman fundur í Góðtemplarahúsinu. Var til hans boðað sérstaklega á fiskstöðvunum. Þátttaka í fundinum var mjög góð, miðað við hve mikil nýlunda þetta var, og von að margar væru hikandi. Jafnvel mun hafa gætt nokkurs kvíða um að þarna væru kon- ur að brjóta af sér hylli allra góðra manna og fyrirgera von sinni um jarðneska velferð. En 68 voru þær konur, sem fundinn sóttu, og ákváðu að stofna fyrsta verka- kvennafélagið á Islandi. En á næsta fundi félagsins var því gefið nafn samkvæmt tillögu frú Jónínu Jónatansdóttur, en það var hið glæsilega nafn, F r a m - s ó k n, sem er hvort tveggja í senn: skuldbinding og fyrirheit. Sá fundur var haldinn 28. nóv. Lagði þá bráðabirgða- stjórn, sem kosin hafði verið á fyrri fundinum, fram lagafrumvarp, er hún hafði samið. Var það samþykkt óbreytt. Svo hefur skipast, að þær breytingar, sem síðar hafa verið gerðar á þessari grein, eru mjög táknrænar fyrir þróunarsögu verkalýðshreyfingarinnar, félagshyggju og skilning alþýðunnar. Árið 1920, þegar þessari grein er breytt, hefur konum skilist, að einhliða kaupgjalds- barátta er ekki nóg. Sá flýgur ekki langt, sem aðeins hefur einn vænginn. Því verður greinin þannig: „Tilgangur félagsins er sá, að styðja og efla hag félags- kvenna og menningu á þann hátt, sem kostur er á, meðal annars með því að ákveða vinnutíma og kaup- Karólína Siemsen 6 VERKAKONAN

x

Verkakonan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkakonan
https://timarit.is/publication/887

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.