Verkakonan - 01.01.1945, Blaðsíða 7

Verkakonan - 01.01.1945, Blaðsíða 7
Svava Jónsdóítir: Þættir úr sögu Verkakvennafélagsins Framsóknar O T J Ó R N Verkakvennafélagsins Framsóknar þótti hlýða að þessa merkisáfanga, þrjátíu ára afmælis- ins, yrði minnzt m. a. með því, að raktir yrðu hér nokkrir þættir úr sögu félagsins. Ef segja ætti sögu verkalýðsfélags, svo að nokkur mynd væri á (en saga slíkra félaga verður í rauninni aldrei nema hálfsögð af ástæðum, sem vikið verður að áður en þessum þáttum lýkur), yrði að fara með lesendurna á einhvern sjónarhól, þaðan sem víðsýnt væri yfir öll svið þjóðlífsins um þær mundir, er félagið reis á legg. Ekkert hjálpar okkur eins til rétts skilnings og sann- gjarnra dóma um menn liðinna alda, og ítarleg þekk- ing á tímunum, þegar þeir voru uppi, landsvenjum, þjóðháttum og öllu aldarfari. Ekki' verður heldur sagan eins félagsskapar eða hreyfinga, og sízt þeirra, sem jafnmikið hafa haft að færa og annarri eins byltingu valdið og jafnaðarstefnan og verkalýðshreyfingin, skýrð eða skilin án þekkingar á þeim jarðvegi, sem hún festi fyrst rætur í. Til þess að skilja og meta rétt gildi og þýðingu slíkra samtaka, yrðum við helzt að gera okkur grein fyrir hvernig þjóðlífi t. d. hér á Islandi var háttað, þégar fyrstu verkalýðsfélögin voru stofnuð. Hverra höfuð- strauma gætti þá í andlegu lífi þjóðarinnar? Hvaða hug- sjónir átti hún sér þá stærstar og hvaða hugðarefni voru henni kærust? Hvernig var stjórnarfar hennar á pappírnum og í framkvæmdinni? Hvaða kröfur gerði alþýða manna til lífsins? Hverra úrræða neytti hún til að fá þær uppfylltar og hvernig tókst henni að fá þeim fullnægt? En þetta þýðir á bláköldu máli veruleikans: Hvernig var viðurværi alþýðunnar, fatnaður, húsa- kynni, skemmtanir hennar, menntunarskilyrði, mögu- leikar hennar til að búa börnum sínum betri lífskjör en hún sjálf naut? Þekking á þessum og ótal öðrum atriðum um aldar- hátt og þjóðhagi þeirra tíma myndi skapa nýjan skiln- ing á því að stofnun og starfsemi verkalýðsfélaganna er í raun og veru ékki einkamál meðlima þeirra, bar- átta þeirra ekki hagsmunamál nokkurra manna, heldur mál allrar þjóðarinnar. Þeir, sem nú eru ungir og hafa tekið við þeim rétt- indum, menningu og auknu hagsæld, sem verkalýðs- félögin hafa skapað, sæju þá að hér ættu þeir arf, sem ekki bæri að forsmá, heldur taka við með þakklæti, varðveita hann og ávaxta með ræktarsemi, lifandi á- huga og virku starfi. Og ýmsir þeirra, sem láta sig litlu skipta hvernig hverjum einstakling reiðir af í lífsbaráttunni og horfa með lítilli samúð á stéttasamtök og stéttabaráttu, kynnu þá að skilja, að á miklu valt fyrir Islendinga, þegar ný framleiðslutæki og aukið fjármagn höfðu komið á byltingu í atvinnuháttum, og verkafólkið varð fjölmennasta stétt bæja og sjávarþorpa, að samtök mynduðust, sem spornuðu gegn því að hér skapaðist menningarsnauður og úrræðalaus öreigalýður. En þó að höf. þessara lína sé vel ljóst, hversu nauð- synlegt verk þetta væri og um leið ánægjulegt, verður að segja það hér strax í upphafi, að hann er þess ekki umkominn að ynna slíkt verk af hendi. Um ástæður til þess skal ekki fjölyrt. En alþýða Islands, konur eigi síður en karlar, hefur aldagamla æfingu í því að bjargast við lítið, en láta lífsvonina, ódrepandi trú á betri framtíð, bæta sér í munni þau fátæklegu föng, sem á borð eru borin. Og í þeirri trú, að sú komi tíð, að einhver dóttir eða sonur alþýðunnar segi sögu þessa félags eins og hún þarf að segjast, eru eftirfarandi þættir teknir saman. UPPHAF. Sá, sem með athygli hefur lesið greinar þeirra hér í blaðinu, sem bezt muna liðna tímann, hlýtur að hafa fengið nokkra hugmynd um kjör alþýðu manna á þeim tímum, þegar fræ verkalýðshreyfingarinnar eru að byrja að skjóta öngum í íslenzkum jarðvegi. Hann mun hafa sannfærzt um, að þar eiga við orð sr. Sigurðar Einarssonar: „Sjáðu þetta fólk í fjötrum, fátækt, snautt og reyrt í bönd. Köldu húsin, klæði úr tötrum, kalda, lúna vinnuhönd.“ Enda kom að því að fleiri og fleiri sáu, að hér þurfti nýrra úrræða við. Vorið 1913 kemur það til umræðu á fundi í Kven- réitindaféiagi Islands, hvort það félag geti ekki gert eitthvað til að bæta kjör þeirra verkakvenna, sem eink- um vinni útivinnu, fiskverkun o. þ. háttar. Var frú VERKAKONAN 5

x

Verkakonan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkakonan
https://timarit.is/publication/887

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.