Foreldrablaðið - 01.12.1951, Side 14

Foreldrablaðið - 01.12.1951, Side 14
Tilhlökkunin var svo mikil, að við vor- um komin á fætur fyrir allar aldir. Það var líka svo þægilegur ilmur af nýbök- uðum kökum um allt húsið. Hann kitlaði nasimar og hélt fyrir okkur vöku. Það voru jólakökur, sódakökur, gyðingakök- ur, vínartertur og piparkökur. Með köku- ilminum barst svo sætur ávaxtailmur af eplum og þrúgum. Rétt fyrir hádegi var svo stofunni hennar ömmu læst, því að þar voru allir þessir leyndardómsfullu pakk- ar, jólagjafirnar og jólatréð sjálft, þunga- miðjan í allri hátíðinni. Þangað mátti enginn koma án sérstaks leyfis og það var sjaldan veitt. Stundum reyndum við Kiddi bróðir minn og ég að gægjast inn um skráargatið, en slíkar njósnir voru illa séðar af fullorðna fólkinu. Um hádegið var snætt brauð og te, en matarlystin var ekki mikil hjá okkur krökkunum. Við vissum, að'seinna var von á mestu kræsingum, sem við þekkt- um, steiktum rjúpum, sem móðursystir okkar og maður hennar sendu okkur fyr- ir hver jól norðan frá Skagaströnd. Fyrir hádegið hafði pabbi setið niðri í kjallara og reytt rjúpurnar, en Kiddi bróðir fékk snemma að aðstoða hann við þetta starf. Bæði var hann handlaginn og harðdug- legur, gat aldrei setið auðum höndum, og svo var það líka nokkur afþreying að hafa eitthvað fyrir stafni þennan langa dag. Eftir hádegismat var tekið að steikja rjúpurnar. Þær voru steiktar í stórum potti, en í eldhúsinu okkar var gömul og stór eldavél eins og tíðkuðust þá. Þegar ilminn af rjúpunum lagði að vitum okk- ar, komst jólahugurinn í algleyming, og hver klukkustundin varð enn lengri en fyrr. Rjúpur voru sem óðast að verða al- mennasti jólamaturinn í Reykjavík, en gæsir þekktust helzt ekki nema hjá erlendu fólki. Margir, einkum þeir, sem flutt höfðu seint úr sveit, héldu samt fast við hinn forna sið að eta hangikjöt á aðfangadag jóla, en hjá okkur var hangikjötið etið seinna um jólin. Kl. 6 var setzt að borðum, en áður höfðum við öll farið í sparifötin. Hvert okkar fékk heila rjúpu, nema minnstu krakkarnir. Það er sérstök list að vinna vel að rjúpum, eins og kunnugt er. Þá list lærðum við snemma, enda vorum við svo að segja útötuð í rjúpnasósu eftir máltíðina. Og södd vorum við, höfum sennilega etið helmingi meira en við höfð- um gott af. Heil rjúpa með kartöflum og þykkri rjómasósu eftir vild, já það var engin óvera. Fjöldi manns fór í kirkju á jólakvöld, en ekki var það siður hjá okkur. Jafnvel amma mín, sem var mikil trúmanneskja, fór ekki í kirkju þá. Hún fór hins vegar á jóladag. En þrátt fyrir það, að við sótt- um ekki kirkju, voru kirkjurnar, eða frekar kirkjuklukkurnar líka þáttur í jólahátíð okkar. Við hlustuðum alltaf á samhringingu þeirra. Klukkan 6 byrjaði Landakotskirkjan, en hún var skammt frá okkur, beint upp af Olsenstúni. Seinna tóku svo til samhringingar Dómkirkjunn- ar og Fríkirkjunnar. Ef veður var gott, heyrðust þær um allan bæinn. Þær juku hátíðina, innsigluðu hana með hljómi sínum. Svo fór fullorðna fólkið upp á loft til þess að ljúka öllum undirbúningi, raða gjöfunum í kring um tréð og kveikja á kertunum. Við krakkarnir biðum niðri 1 eldhúsi. Þegar búið var að kveikja, kom hin langþráða tilkynning: „Það er búið að kveikja á kertunum.“ Ég verð aldrei svo gamall maður, að ég finni ekki mýkt og trega endurminn- inganna um mestu hátíð horfinnar æsku fara um mig allan, þegar ég rifja upp þessi einföldu orð foreldra minna og ömmu, sem allt vildu gera fyrir barna- hópinn sinn: „Það er búið að kveikja á kertunum.‘ 1 4 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.