Foreldrablaðið - 01.05.1952, Blaðsíða 9

Foreldrablaðið - 01.05.1952, Blaðsíða 9
heppilegt, að sumir kennarar helguðu sig sérstaklega þessari hlið, hinu félagslega starfi, en aðrir önnuðust fremur kennsl- una. Með einhverjum hætti verður að tryggja, að skólinn kannist við hvert ein- asta barn á landinu, að einhver kennari þekki það persónulega og beri vissa ábyrgð á því, hvort sem það er í skóla eða ekki. Ollum þarf að gefa hugmynd um, hvað góður skóli getur boðið, hvar sem þeir búa á landinu. Þar sem skólann vantar, verður að sýna þessa mynd á vönduðum námskeiðum, með kvikmynd- um, útvarpi og öðrum tiltækum ráðum. Þannig verður skólaskyldan að tryggja, að öll börn geti gert sér sæmilega skýra hugmynd um réttindi sín, og hvers þau færu á mis, ef þau færu ekki í skóla. Skólaskyldan á að vera réttindi til handa bömunum, en skylda gagnvart ríkinu og vandamönnum barnanna. Þær skyldur, sem börnin að sjálfsögðu gangast undir í skólanum, eiga að vera rökrétt og auð- skilin afleiðing þess, að þau nota sér rétt- indi sín, þá verða þær ljúfar. Stefna verður að því að tryggja full- komlega, að hver sá, sem raunverulega vill læra 6g hefur hæfileika til þess, eigi þess kost. Hvorki má fátækt né skilnings- leysi verða efnilegum unglingi fjötur um fót. Það er herfileg misnotkun jafnréttis- hugsjónarinnar að setja námfúsan gáfu- roann við sama borð og heimskan let- ingja. Þeirri göfugu hugsjón verður betur þjónað með því, að veita báðum uppfyll- ing óska sinna: Gefa þeim síðarnefnda frí frá náminu — og sé ekki búið að sýkja hann um of af vonleysi og trassaskap, má láta hann vinna eitthvað nytsamlegt — en styrkja hinn til náms eftir þörfum. A þessum vettvangi er mikið starf óunn- ið, en það efni verður ekki rætt að sinni. Tilgangur þessarar greinar er fyrst og fremst að leiða athyglina að því, að fyrsta °g æðsta boðorðið í skóla- og uppeldis- niálum er að tryggja öllum börnum og unglingum einhver holl viðfangsefni árið xun kring. Það þarf ekki umfram allt að vera nám, bömin þurfa ekki fyrir alla muni að vera í skóla, þótt æskilegt sé, að þessi viðfangsefni séu hagnýt og mennt- andi í senn. Hins vegar er skólaskylda í einhverju formi nauðsynleg til trygging- ar því, að ekki verði níðzt á námslöngun nokkurs barns, viljandi eða óviljandi, það má ekki sleppa hendinni af neinu bami. Skólaskyldan ætti sízt að vera styttri en hún er nú, eins og þegar hefur verið tekið fram, en dálítið breytt, frjálsleg og víð- faðma. Draga má úr námsskyldunni í ein- stökum greinum, skólinn verður að við- urkenna rétt nemandans til að hafa sinn eigin vilja og á einmitt að örva hann til að standa á eigin fótum og vinna sjálf- stætt. Heimilið er barninu æskilegri vett- vangur en skólinn að öðru jöfnu, og því ætti ekki aðeins að leyfa heimilinu að leggja af mörkum allan þann skerf, sem því er unnt barninu til vaxtar og þroska, heldur ætti að stuðla að þeirri lausn, taka hana fram yfir hina, að láta hið opinbera leysa úr öllum þörfum, ef vænta má jafns árangurs. En skólinn á að hafa eftirlit með börnunum að minnsta kosti til 15 ára ald- urs og bæði rétt og skyldu til íhlutunar um hagi þess, ef þörf krefur. Ríkið á ekki aðeins að rækja þá skyldu að sjá fróð- leiksfúsum nemendum fyrir skólahúsum, bókum og kennurum, heldur á það einnig að uppfylla þá skyldu, sjá öðrum ungling- um fyrir verkefnum við þeirra hæfi. En ríkið á ekki að ganga lengra en þörf er á: Þann vanda, sem Pétur eða Páll leysir, þarf ríkið ekki að leysa. Þá getur það horft á með velþóknun — og sparað. Að lokum skulu dregin saman í örfá orð meginatriði þessarar greinar: 1. Þjóðfélagið hefur skyldur að rækja við æskuna, því ber að taka þar við, sem mátt eða skilning einstaklinganna þrýt- ur, til að tryggja farsæld hennar. 2. Framfærslutrygging — atvinnutrygg- FORELDRABLAÐIÐ 9

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.