Foreldrablaðið - 01.05.1952, Qupperneq 10

Foreldrablaðið - 01.05.1952, Qupperneq 10
ing framfæranda — á að ganga fyrir öðr- um réttindum, því að án daglegs brauðs eru öll önnur réttindi einskis verð. 3. Æðsta boðorðið í afskiptum þjóð- félagsins af bömum og unglingum — eftir að framfærsla þeirra hefur verið tryggð — er að veita þeim einhver holl viðfangs- efni, sem megna að vekja áhuga þeirra og efla manndóm og þrótt, að forða þeim frá bölvim iðjuleysis og sljóvgandi þvingun- arvinnu í hvaða mynd sem er. 4. Skólaskylda er heppileg ráðstöfun til þess að tryggja hverju barni lágmarks- fræðslu og eftirlit með högum þess og heilbrigði. Skólaskyldan á ekki að stytt- ast frá því sem nú er, en hún þarf að verða rýmri og sveigjanlegri. Hún á að verða réttindi til handa börnunum, en skylda gagnvart ríki og framfærendum barnanna. Hún á að tryggja, að allir fái tækifæri til þess náms, sem æskilegt er talið yfirleitt, og þess náms, sem þeir sjálfir æskja, en takmarka ber almenna skyldu til að nota þessi tækifæri. 5. Innan ramma skólaskyldunnar þarf að verða meiri fjölbreytni, meira líf, hag- nýtari og heilsusamlegri vinnubrögð, svo að heilbrigð lífsgleði, farsæld og ham- ingja fólksins megi vaxa í eðlilegu hlut- falli við þekkingu og tækni. EFNALAUG HAFNARFJARÐAR H.F. Sími 9389 — Gunnarssundi 2 i | KEMISK FATAHREINSUN OG LITUN j Vönduð vinna — Fljót afgreiðsla Sendum gegn póstkröfu um land allt +----------_________________________________________________+ I 0 FORELÐRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.