Foreldrablaðið - 01.01.1970, Page 5

Foreldrablaðið - 01.01.1970, Page 5
3 Þar sem við höfum fregnir af því, að Hlíðarskólinn hefur annað fyrirkomulag en venja er, báðum við skólastjórann, Ásgeir Guðmundsson, um að segja okkur frá foreldrafundum þar. Vegna fyrirspurna frá ritstjórn Foreldrablaðs- ins vil ég geta eftirfarandi atriða um samband foreldra og skóla í Hlíðaskóla 1969—70. 1. Almennir foreldrafundir voru haldnir í byrjun skólaárs með foreldrum einstakra aldursflokka. Á fundum þessum var kynnt starf skólans, námsefni rakið, getið um reglur og venjur innan skóla, lögð mikil áherzla á að fundir þessir væru í þeim aldurs- flokkum, þar sem veruleg breyting verður á venj- um nemenda eða námstilhögun. 2. Þá hafa kennarar nú ákveðna viðtalstíma hálfsmánaðarlega og sjá kennarar sjálfir um að boða foreldra til viðtals. Fer viðtal fram í kennslu- stofu en felld er niður kennslustund í staðinn. Síðari hluta vetrar er reiknað með einum við- talstíma í mánuði. Aðrir foreldrar mega koma í viðtalstíma en þeir, sem boðaðir eru, ef þeir óska. Á unglingastigi eru foreldrar ekki boðaðir, en viðtalstímar jafnmargir. Foreldradagur verður þar síðari hluta skólaárs með hefðbundnum hætti. 3. Þá er að geta þess, að mánaðarlega eru send heim svo kölluð skólaspjöld með nemendum barna- skólans, en á þessi spjöld er færður vitnisburður um stundvísi, hegðun, ástundun heima og í skóla. -r þetta gert eftir regium, sem skólastjórn og kennarar hafa komið sér saman um. Foreldrum er Qert að kvitta við hvern mánuð. Oft verður vitnis- burður upphaf samræðna og samstarfs. Þetta eru aðalatriðin varðandi samstarf heimila °9 skóla. Vafalaust þarf að auka þetta samband verulega, en til þess þarf skólinn að hafa fleiri starfsmönnum á að skipa. Álit kennara er mjög jákvætt varðandi framangreindar breytingar á for- eldraviðtölum. Ásgeir Guðmundsson. Er ekki hægt að auka málfræði- kennslu í barnaskólum? í Námsskrá fyrir nemendur á fræðsluskyldualdri frá árinu 1960 segir svo orðrétt: Á barnafræðslustigi verður að stilla málfræði- kennslu í hóf, og getur orðið skaðlegt að ætla börn- unum þar mikið nám. Hins vegar eiga sæmilega greind börn að geta lært þau atriði, er mest gildi hafa fyrir stafsetningu og rétta beygingu málsins. En eðlilegast er á barnafræðslustigi að tengja mál- fræðinámið stafsetningu og stílagerð. Börn eiga að geta lært helztu einkenni orðflokka, beygingu fallorða og að þekkja stofn þeirra. í sagnbeygingum ætti aðeins að kenna einföldustu atriðin. Varast ber að fara fljótt yfir. Mörg verk- efni þarf að leysa, og traust 03 trúleg yfirferð tryggir það, að nemendur læri vel það, sem af þeim er heimtað. En námið má ekki verða þeim of erfitt og skapa þeim óbeit á námsefninu, en svo getur hæglega farið, ef þeim gefst ekki nægur tími til þess að nema hvert atriði. Jafnframt verður að gæta þess, að á barnaskólastiginu verður lestrar- kennslan og lestur bókmennta að sitja í fyrirrúmi. Til þessara greina má aldrei verja minna en helm- ingi þess tíma, sem ætlaður er til móðurmáls- kennslunnar.

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.