Foreldrablaðið - 01.01.1970, Page 11

Foreldrablaðið - 01.01.1970, Page 11
9 Sveinn Einarsson leikhússtjóri: Allir kannast við þá gömlu kenningu, að maður- inn lifi ekki á brauði einu saman. Flest gerum við að jánka þessu, án þess að hugsa svo mikið út í, hvað við gerum sjálf til að afla annars viðurværis en brauðs eða þess, sem fyllir magann. Okkur dreymir um, að við sjálf og börn okkar séu hraust á líkama og sál, og svo mettum við líkamann. En okkur gleymist oft, hversu ótrúlega náið sambýlið er hjá líkama og sál, þannig að búi annað við skort, býr hitt við skort líka. Við lifum í samfélagi og setjum okkur reglur. Þetta samfélag kemur sér upp skólum, uppeldis- stöðvum ungviðsins, svo að það megi verða fært að erfa landið. Hvers vegna skóli? Vegna þess einfaldlega, að hver einstaklingur býr yfir þroska- möguleikum, og mikið er í húfi fyrir hann sjálfan og allt þjóðfélagið, að honum nýtist þeir. Hann þarf að afla sér þekkingar, svo að hann verði hæfari til þess að lifa lífinu í samfélagi við aðra. Þetta þykja okkur sjálfsagðir hlutir. En hvers vegna leikhús? Nú vitum við, að maður- inn býr yfir margvíslegum eiginleikum, sem verða betur þroskaðir með öðru en frádrætti og sam- lagningu, stafsetningu og setningafræði. Listin getur aukið skilning barns eða unglings á mann- fólkið í kring og vandamál þess, örvað hugmynda- flug og sjálfstæðan sköpunarkraft, leyst úr læð- ingi næmleika til að njóta svo margs, sem til- veran hefur upp á að bjóða annað en föt og fæði: Hreinlega að auka lífinu fegurð og gera það fyllra. Og þarna er leikhúsið hinn sjálfsagðasti vettvang- ur, samnefnari svo margra listgreina: Bókmennta, tónlistar, myndlistar, danslistar, jafnvel byggingar- listar. Leiklistinni hefur oft verið líkt við spegil: Þarna sjáum við okkur sjálf í skoplegu Ijósi eða raunalegu, hugmyndir okkar, hugsanir og tilfinn- ingar. Leikhúsið er þannig skóli að sínu leyti líka, og kennslugreinar eru það, sem ekki verður í askana látið. En er þar með öll sagan sögð? Skólar móta einstaklinginn og samfélag hans. En skyldi ekki leikhúsið gera fleira en að örva og hrífa? Skyldi það ekki geta mótað líka? Er mönnum Ijóst, hví- líkt afl leikhúsið getur verið til þess að kenna mönnum að afla brauðs síns og deila því? Hvers vegna leikhús? Hvers vegna ekki leik- hús? Höfum við efni á að vera án þess? Sveinn Einarsson. P.S. Það sakar ekki að geta þess, að góð stund í leikhúsi getur verið það skemmtilegasta, sem til er. Sami.

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.