Foreldrablaðið - 01.01.1970, Síða 13

Foreldrablaðið - 01.01.1970, Síða 13
FJARVERA FORELDRA ÓHEPPILEG Á KVÖLDIN Þessari spurningu yrðu víst flestir til að svara neitandi. Það tilheyrir almennri og hversdagslegri þekkingu, að óheppilegt er, að börn séu mikið án umsjónar og samvista foreldra. Frá þessu sjónar- miði séð, er spurningin óþörf. Við komumst hins vegar ekki hjá þeirri staðreynd, að oft krefja þarfir, að börn séu ein heima eða, í bezta tilviki, í um- sjá vandalausra. Sjálf þjóðfélagsþróunin virðist ganga í þá átt að auka þessar þarfir. Breyttir at- vinnuhættir og meira og fjölbreyttara félagslíf kalla foreldra meira að heiman en áður. Þegar þetta er haft í huga, tekur spurningin á sig nýja mynd og verður eitthvað á þessa leið: Hve mikið getum við lagt á barnið í þessu tilliti, án þess að eiga á hættu að baka því tjón? Við þeirri spurningu er ekki til neitt algilt svar. Þar kemur fjölmargt til, sem seint verður talið eða metið til fulls. í stuttu svari er þess enginn kostur að nefna nema fátt eitt af því, sem máli skiptir. í eftirfarandi svari hef ég tekið þann kost að takmarka mig við eftirtalin þrjú atriði: í fyrsta lagi aldur barnsins, í öðru lagi þann tíma sólar- hringsins, sem barnið er eitt og síðast en ekki sízt, sálrænt ástand barnsins sjálfs. ALDUR— ÖRYGGISTILFINNING Aldur barnsins er það atriði, sem liggur mest í augum uppi. Kunnugt er af rannsóknum, að börn innan 3ja ára aldurs geta beðið sýnilegt og stund- um varanlegt tjón af aðskilnaði við móður, jafn- vel þótt um fáa daga sé. Öryggistilfinning barna á þessum aldri, vellíðan þeirra og heilbrigð þróun, er nátengd nálægð og ummönnun móðurinnar eða einhvers, sem er þess umkominn að koma í henn- ar stað. Þegar barnið er komið á skólaaldur, hef- ur orðið veruleg breyting á þessu ástandi. Barnið hefur þá öðlazt nokkur tök og skilning á umhverfi sínu, er orðið sjálfstæðara og því óháðara öðr- um. Öll rök hníga að því, að fjarvera foreldra sé óheppilegri á kvöldin og að næturlagi en mitt í önn og leik dagsins. Á kvöldin eru börn viðkvæm- ari og hræðslugjarnari og þurfa því meir á stuðn- ingi að halda. Einnig er hætt við að fjarvera for- eldra á kvöldin valdi röskun á nauðsynlegum lífs- venjum barnsins, t. d. háttatíma. Nú heyrir það til undantekninga, að mjög ung börn séu skilin eftir ein að kvöldlagi. Þau eru þá falin umsjá barnfóstru. Hér skiptir miklu máli, að barnfóstran sé einstaklingur, sem barnið þekkir og ber traust tii. Tíð skipti á barnfóstrum eru, af þessum sök- um, óheppileg. Sálrænt ástand barnsins sjálfs er eitt þýðingar- mesta atriðið og jafnframt það, sem erfiðast er að meta. Það, sem eitt barn þolir án áfalla, getur orðið öðru ofraun. Sjálfsagt hafa margir velt fyrir sér þeirri spurningu, hvernig flestum foreldrum geti tekizt vel til með uppeldi barna sinna án teljandi þekkingar í uppeldisfræðum. Svarið er einfaldara en ætla mætti. Þetta byggist á eðli- legum og jákvæðum tilfinningatengslum foreldra og barns. Barnið þarf að finna, að það sé vel- komið í þennan heim og foreldrum sínum til ánægju, þrátt fyrir óhjákvæmilega árekstra öðru hverju. Þar sem þessi tengsl eru fyrir hendi, þroskast barnið að jafnaði eðlilega, þótt öðrum aðstæðum kunni að vera ábótavant. Til skamms tíma var algengt að kenna vinnu mæðra utan heimilis um vaxandi uppeldisleg vanda- mál. Staðhæfingar í þessa átt krefjast endur- skoðunar í Ijósi nýrrar reynslu. Fjarvistirnar sjálfar eru langt í frá það eina, sem máli skiptir. Það er ekki síður mikilvægt, hvernig samskiptum foreldra og barns er háttað, þegar tími gefst tii samvista. Af þessu má draga þá ályktun, sem vel getur verið niðurlag þessa fátæklega svars, að foreldrar geta, ef vilji er fyrir hendi, að verulegu leyti bætt börnum sínum fjarvistir með því að sinna þeim því meir, þegar stundir gefast til samveru. Örn Helgason.

x

Foreldrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.