Foreldrablaðið - 01.01.1970, Síða 14
LESEFNI FYRIR BDRNIN
Rímlisíargáta
Hér kemur nokkuð handa þér að spreyta þig á.
Það er vísa. Vísur eru með ýmsu móti, sumar eru
stuttar og aðrar langar. Vísur eins og þessi kall-
ast FERHENDUR, af því að hendingarnar eða Ijóð-
línurnar eru fjórar. — Þessi vísa er enn fremur
HRINGHENDA, það er hún vegna þess, að það eru
rímorð í miðjum Ijóðlínum (köldu, töldu, höldur,
öldur). Taktu svo eftir endaríminu, sem er sitt á
hvað í enda Ijóðlínanna: Skor, leiði, spor, veiði.
Tveir stuðlar eru í fyrstu og þriðju Ijóðlínu, en
höfuðstafirnir eru í annarri og síðustu línu. Stuðlar
og höfuðstafir eru prentaðir með breyttu letri í
þessari vísu, til þess að þú getir þekkt þá. Svo
getur þú reynt að finna þá í öðrum vísum.
Og hér kemur nú vísan. Hún er eftir Theodór
Daníelsson, kennara við Breiðagerðisskóla í
Reykjavík:
Andaði köldu undan Skor,
ýtar töldu leiði.
Fetaði höldur feigðarspor,
fögnuðu öldur veiði.
Og hér er nú fleira að athuga. Skilurðu öil orðin?
Hvað þýðir t. d. ýtar, höidur, leiði, feigð (feigðar-
spor)? Og hver er þessi Skor, sem þarna er nefnd?
Og loks: Um hvaða atburð er hér talað? Þú mátt
vita, að hann gerðist fyrir rúmum 200 árum á
Breiðafirði. Og um hann hafa fleiri skáld ort. Þú
getur t. d. fundið kvæði í skólaljóðunum þínum um
hann eftir Matthías Jochumsson.
Ertu kannske nú þegar búinn að ráða gátuna?