Foreldrablaðið - 01.01.1970, Page 17

Foreldrablaðið - 01.01.1970, Page 17
15 Friðgerður Samúelsdóttir: nérl Sumir hérar eru kallaðir páskahérar. Páska- hérar eru alltaf að mála páskaegg. Rétt fyrir páska fara þeir svo af stað með eggin sín og fela þau í trjám og runnum. Á páskadag, þegar krakkarnir vakna, fara þau beint út að leita að páskaeggjum. Hver og einn má eiga öll þau egg, sem hann finnur. Einn slíkur páskahéri hét Marteinn. Hann var óvenju litill héri, en fljótur að hlaupa og dálítið hrekkjóttur. Allan liðlangan daginn gat hann verið á hlaupum um skóginn, þar sem hann átti heima. Eitt sinn kom Marteinn að hænsnahúsi, og þar var nú líf í tuskunum. ,,Nú skal ég svei mér stríða hænunum," hugsaði Marteinn. Svo læddist hann ofur varlega inn í hænsnahúsið og tók þrjú egg frá hænunum. En þær voru svo uppteknar af sjálf- um sér, að þær tóku ekki eftir neinu. „Iss," sagði Marteinn, „það er ekkert gaman að stríða þessum hænum, þær gagga frá sér allt vit og taka ekki einu sinni sinni eftir því, að eggjunum hefur fækk- að. Nú veit ég, hvað ég geri, ég fer heim með eggin og mála þau eins fallega og hægt er.“ Marteinn páskahéri rúllaði nú eggjunum heim til sín. Þegar heim kom, tók hann strax til óspilltra málanna og málaði eggin þrjú í öllum regnbogans litum. Sá var nú upp með sér, þegar hann virti fyrir sér handaverk sín. „Sennilega er bezt að setja eggin upp við ofn- inn, svo að þau þorni fljótt," sagði Marteinn við sjálfan sig. Svo tók hann eggin þrjú og lagði þau við ofninn.

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.