Foreldrablaðið - 01.01.1970, Qupperneq 25

Foreldrablaðið - 01.01.1970, Qupperneq 25
23 Eiga stúlkur og drengir að læra sömu handavinnu? í öllum þeim umræðum, sem átt hafa sér stað að undanförnu um skólamál, hefur verið helzt til hljótt um handavinnukennsluna. Sú skiptina, sem nú er á handavinnu stúlkna og drengja, þ. e. að drengir læri smíðar og stúlkur sauma, á rót sína að rekja til hinnar hefðbundnu verkaskiptingar, sem tíðkaðist í þjóðfélagi okkar allt fram á þessa öld. Bóndinn þurfti að geta smíð- að og gert við verkfæri, og húsmóðirin varð að sauma fatnað fjölskyldu sinnar. En nú lifum við á breyttum tímum. Karlmenn velja sér nú hinar ólíklegustu starfsgreinar, sem sumar hverjar krefj- ast handlægni og smíðakunnáttu en aðrar ekki. Verkfæri og húsbúnaður eru nú keypt tilbúin. Starfssvið kvenfólksins hefur aftur á móti breytzt mun minna. Þó hefur sú þýðingarmikla breyting orðið á, að nú er fatnaður framleiddur í fjölda- framleiðslu í verksmiðjum, svo að óðum dregur úr nauðsyn á fatasaum og prjónaskap í heimahúsum. Vélarnar hafa einnig létt störf húsmæðranna, svo Geröur G. Úskarsdóttir: að nú hefur kvenfólkið einnig möguleika á því að velja sér starfsgrein, a. m. k. að nokkru leyti, og er það þá aðeins saumakonustarfið, sem krefst saumakunnáttu. Af þessu sést, að hlutverk handavinnukennsl- unnar getur ekki verið að búa nemendur undir sér- stakt starf, heldur að þroska þá, örva sköpunar- gleði þeirra og gera þeim auðveldara að þjarga sér í lífinu, sem er markmið allrar kennslu. í kennslu og uppeldi á að miða að því að búa bæði kynin undir rekstur heimilis og ýmiss konar störf í þjóðfélaginu. Við getum ekki búizt við, að í öliu því umróti, sem á sér stað í þjóðfélagi okkar, haldist heimilin í sömu skorðum og haldi við þeirri hefðbundnu verkaskiptingu milli kynjanna, sem á rót sína að rekja til aðstæðna og tíma, sem er gjörólíkur síðari hluta 20. aldar. Mér finnst, að öll árin á skyldustiginu ættu stúlkur og drengir að fá sams konar verklega þjálf- un. Strax í byrjun handavinnukennslunnar í 9 ára

x

Foreldrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.