Foreldrablaðið - 01.01.1970, Page 27

Foreldrablaðið - 01.01.1970, Page 27
25 Bjarni Þórðarson tryggingafræðingur: Slysatryggingar í skólum HVAÐA RÉTT Á SKÓLABARN TIL BÓTA FYRIR TJÓN, SEM ÞAÐ KANN AÐ VERÐA FYRIR VEGNA SLYSS í SKÓLA? Barn, sem verður fyrir slysi á skólatíma, þ. e. a. s. í kennslustund, frímínútum, námsferðum eða öðrum skólaferðum, öðlast því aðeins rétt til skaða- bóta vegna þess tjóns, sem slysið hefur valdið, að einhver beri skaðabótaábyrgð á slysinu. Þeir aðilar, sem geta orðið skaðabótaskyldir barni, sem verður fyrir slysi í skóla, eru: 1. Skólayfirvöld (t d. vegna hugsanlegra skaða- verka kennara). 2. Önnur skólabörn. 3. Aðrir aðilar. Bjarni Þórðarson stundaði nám í tryggingafræði við Kaupmannahafnarháskóla og lauk þar prófi 1964. Hann hefur síðan stundað ráðgjafarstörf fyrir tryggingafélög og ýmsa aðra. Ef skaðabótaskylda vegna slyss á skólabarni sannast á einhvern aðila, getur barnið (forráða- menn þess) krafið hann um bætur vegna þess fjár- tjóns, sem það hefur orðið fyrir. í sumum tilfell- um kann barnið að eiga sök á tjóni sínu að hluta móti öðrum (sakarskipting t. d. vegna gáleysis barns). Skal þá tjónvaldur bæta barninu tjón þess í léttu hlutfalli við sök hans, en barnið ber sinn hiuta af tjóninu. Einnig er hugsanlegt, að bætur þess barns, sem tjóni veldur, verði lækkaðar með hliðsjón af aldri þess. Fleiri ástæður geta og komið þar til greina. Beri enginn ábyrgð á slysi barnsins, þ. e. a. s. slysið hafi eingöngu orðið fyrir gáleysi þess eða fyrir hreina óhappa tilviljun, verður það að bera tjón sitt án bóta. Rétt er að geta þess, að borgarstjórn Reykja- víkur lætur nú kanna möguleika á slysatryggingu fyrir börn á skyldunámsstigi, þannig að börn, sem hlytu meiri háttar varanlega örorku vegna slysa í skóla, fengju greiddar örorkubætur. Bjarni Þórðarson.

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.