Foreldrablaðið - 01.01.1970, Page 28

Foreldrablaðið - 01.01.1970, Page 28
26 SiGNY THORODDSEN SÁLFRÆÐiNGUR: Sálfræði- þjónusta / 1 skólum Foreldrum flestra barna á barnaskólastigi mun kunnugt um, að til sé sálfræðiþjónusta barnaskól- anna í Reykjavík. Hins vegar vantar mikið á, að foreldrar almennt geri sér Ijóst, hvert hlutverk þessarar sálfræðiþjónustu er; hvaða vandamál reynt er að ieysa með henni. Með þessum línum er ætlunin að kynna foreldrum nokkuð gang mála hjá stofnun þeirri, er um þessa þjónustu sér, og auðvelda fólki þannig að færa sér í nyt þá aðstoð, sem stofnunin veitir. Sálfræðideild skóla er til húsa í Fræðsluskrif stofu Reykjavíkurborgar í Tjarnargötu 12. Þar starfa nú í vetur fjórir sálfræðingar, einn félags- ráðgjafi og einn sérmenntaður kennari. f barna- skólum Reykjavíkur eru nú um tíu þúsund börn. Er því Ijóst, að sálfræðideildin verður að takmarka starfsemi sína við barnaskólastigið, og mörgum tilfellum verður ekki sinnt sem skyldi með svo fá- mennu starfsliði. HLUTVERK DEILDARINNAR er fyrst og fremst athugun á skólabörnum, sem eru afbrigðileg að einhverju leyti í námi eða hegðun í skóla og á heimili. Orðið „afbrigðilegur" er hér notað um frávik frá meðallagi, en sálfræðideildin hefur einnig afskipti af börnum, sem afbrigðileg eru í jákvæða átt, þótt hitt sé að sjálfsögðu algengara. Af ein- stökum vandamáium barna, sem geta verið ástæða til athugunar hjá sálfræðideiIdinni, má nefna: a) Óvissa um það, hvort barn hafi náð nægileg- um þroska til að hefja nám í barnaskóla. Má í því sambandi nefna skólaþroskapróf, sem haldin eru á vorin fyrir börn, sem hefja eiga nám um haustið. Sálfræðideildin tekur þá til athugunar börn, sem sýna lélegan árangur á prófinu, og skóla- stjóra og foreldrum hefur komið saman um

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.