Foreldrablaðið - 01.01.1970, Blaðsíða 32

Foreldrablaðið - 01.01.1970, Blaðsíða 32
30 JÖFN STARFSSKIPTING MILLI HJÓNA ER NAUÐSYNLEG Og til að svara því strax, hvað mér finnst vera eðlileg þróun, held ég fram, að nokkurn veg- inn jöfn starfsskipting milli hjóna sé nauðsynleg, þ. e. konan vinni úti, eins og karlmaðurinn, bæði hafi jafnlanga frítíma til að sinna heimilinu (auð- vitað verður vinnutími að vera styttri en nú tíðk- ast). Með þessu vinnst margt. í fyrsta lagi tryggir þetta konunni efnahagslegt sjálfstæði og víkkar sjóndeiIdarhring hennar, hún fylgist betur með og áhugamál hennar verða fjölbreyttari. Hún stendur líka betur að vígi til að bjarga sér ein, t. d. við frá- fall maka. Þessar breytingar ættu líka að verða karlmanninum til góðs. Hann gæti verið meira með börnum sínum og tekið þátt í öllum störfum á heim- ilinu, enda væri hann ekki þreyttari en konan, þegar hann kæmi heim úr vinnunni. En hann myndi hætta að hafa óskorað fjárveitingavald yfir allri fjölskyldunni — þar á móti kæmi, að ekki yrði litið á hann sem fjáröflunartæki. Loks ætti höfuð- kostur þessarar ,,eðlilegu“ þróunar að vera sá, að börnin hefðu föður sinn meira hjá sér en nú tíðkast, og það er áreiðanlegt, að þau hafa ekkert minni þörf fyrir föður en móður. Enginn skyldi halda, að hér sé eitthvert smámál á ferðinni. Öll gerð þjóðfélagsins hlýtur að breyt- ast. Félagsleg aðstoð verður veitt í stórauknum mæli. Atvinnulífið verður að taka við fleira fólki. Skólakerfið tekur stakkaskiptum. Engu minni áherzla verður lögð á að mennta konur og karl- menn, og engin ástæða verður til að kenna öðru kyninu meira í grautargerð og ungbarnameðferð en hinu. Enginn kvennaskóli verður starfræktur. Konur staðna ekki lengur á vissum áhugasviðum, eins og nú er algengt. Öll þekkjum við konur, sem sitja heima í leiðindum allan daginn, gleypa í sig hundómerkilegt lesefni, svo sem útiendu kvenna- blöðin, og verða svo andlausar og leiðinlegar. En mörg Ijón eru á veginum til nýrrar hlutverka- skipunar kynjanna. í Sovétríkjunum gerir skipu- lagið ráð fyrir fullkomnu jafnrétti, hvort tveggja hjónanna hlýtur menntun, og bæði vinna utan heim- iils. En mér er tjáð, að á heimilinu skjóti karl- maðurinn sér oft á bak við aldagamla siðvenju, hefð, og láti konuna einfaldlega bæta heimilisstörf- unum ofan á aðra vinnu, en sitji sjálfur allt kvöldið í inniskóm og lesi Prövdu. Þetta sýnir, að flokks- samþykkt og almenn stefnuskrá leysir ekki allan vanda á svipstundu — hugarfarsbreytingu þar til. Og loks eitt dæmi frá eigin reynslu: Ég sagði vinkonu minni, sem á börn, að ég hefði farið með nokkurra mánaða gamla dóttur mína í bólusetn- ingu. ,,Nei, þetta finnst mér nú of langt gengið," svaraði hún. Ég spurði af hverju. ,,Svona lagað vil ég nú gera sjálf“. Bjarni Ólafsson. BJARNI ÓLAFSSON lauk stúdentsprófi frá M. R. 1963. Hann leggur stund á íslenzk fræði við Há- skóla íslands.

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.