Foreldrablaðið - 01.01.1974, Qupperneq 26
24
is, hefur það ráð gefist vel að láta fróðlegar bæk-
ur og blöð liggja frammi við. — Skemmtilegar
myndabækur fyrir börn á forskólaaldri og á fyrstu
árum skyldunáms er gott að hafa til útskýringar,
og þægilegt er, ef texti fylgir myndunum, sem
hjálpar okkur fullorðna fólkinu að finna rétt orð
fyrir eigin frásögn.
L.ítil dönsk bók, sem heitir ,,Hvordan mor“ eftir
Danann Sten Hegeler, kemur út í íslenzkri þýð-
ingu fyrri hluta næsta árs hjá Bókaútgáfunni Ið-
unni. Bókin er til fyrirmyndar um, hvernig hægt
er að fræða börn á aldrinum 3—8 ára eða jafn-
vel eldri á eðlilegan og greinargóðan máta. Skýrt
er frá mismuninum á drengjum og stúlkum með
tilliti til kynferðis, hvaða hlutverk hvort um sig
gegni við tilkomu barns og hvernig það gerist. —
í Bókabúð Snæbjarnar fæst bókin ,,Sádan fár
man ett barn“ eftir Per Holm Knudsen. Skemmti-
legar myndir eru í bókinni og texti fylgir.
FRÆÐSLA AF SKORNUM
SKAMMTI f SKÓLUM
Þegar börnin fara í skóla, gefst skólanum kost-
ur á að taka þátt í þessum mikilvæga þætti undir-
búnings fyrir lífið. Því miður hefur fræðsla um
kynferðismál hingað til verið af skornum skammti
í skólum, en það stendur vonandi til bóta með til-
komu nýs grunnskólafrumvarps og endurskoðun á
námsskrá. Skólinn hefur þarna mikilvægu hlut-
verki að gegna til stuðnings foreldrum við uppeldi
barna. Það er vissulega ómetanlegt að geta rætt
þessi mál við foreldra sína, en börnin hafa einnig
þörf fyrir fræðslu á breiðari grundvelli. í skólan-
um má veita þessa fræðslu í eðlilegum tengslum
við kennslu í t. d. líffræði, heilsufræði og félags-
fræði. Með því að tengja námsefnið fleiri náms-
greinum, verður nemendum það Ijóst, að hér er
um eðlilegan þátt í lífinu að ræða, sem snertir
margar hliðar þess og ræður ýmsu um framtíð
hvers og eins.
í kennslunni fyrir börnin í fyrstu bekkjum barna-
skóla væri æskilegt að fjallað væri um mismun-
inn á kynjum í þessu tilliti, hvernig barn verður
til og fósturþróunin fram að fæðingu, fæðinguna
og hvers vegna börn eru háð því að eiga foreldra
og heimili. í seinni bekkjum barnaskóla er nauð-
synlegt að bæta við þessa fræðslu, meðhöndla
efnið ýtarlegar og fræða um kynþroskann.
Á unglingastiginu er nauðsynlegt að fræða nem-
endur um kynlíf, getnaðarvarnir og siðfræði kyn-
lífsins. — Bókin ,,Æska og kynlíf" frá bókaút-
gáfunni Erni og Örlygi er góð fræðslubók fyrir
unglinga og uppalendur.
Það er mikils virði að vera vel búinn undir kyn-
þroskaskeiðið. Þessi breytingaár eru erfið mörg-
um unglingnum og hægt er að gera þau auðveld-
ari og áhættuminni, er unglingarnir eru fræddir