Foreldrablaðið - 01.01.1974, Blaðsíða 27

Foreldrablaðið - 01.01.1974, Blaðsíða 27
25 um, hvað er að gerast í líkama þeirra og sál og hvaða tilgangi það þjónar. Margri telpunni hefur orðið bylt við, þegar hún óundirbúin fékk blæðingar í fyrsta skipti og sama gegnir um sáðlát hjá piltum. Taugaveiklunareinkenni hjá unglingum má stund- um rekja til vanmáttarkenndar, sem orsakast hef- ur af fáfræði eða misskiIningi í sambandi við kyn- þroska þeirra og kynlíf. Með fræðslu um getnaðarvarnir má forða ung- um stúlkum frá ótímabærri þungun, en það er al- gengt fyrirbæri í okkar þjóðfélagi og hefur í flest- um tilfellum þungbærar afleiðingar fyrir stúlkuna. Piltarnir sleppa oftast betur. — Það er óhætt að fullyrða, að fræðsla um ábyrgð þá, sem fylgir því að verða foreldrar, mundi hafa jákvæð áhrif. Til dæmis hefur allt of lítið verið gert að því hingað til að vekja ábyrgðartilfinningu pilta gagnvart föð- urhlutverkinu. Því hefur stundum verið haldið fram, að kyn- lífsfræðsla mundi valda lauslæti. Ég er sannfærð um hið gagnstæða. Þekkingin gerir mann hæfari til þess að hafa betur stjórn á sjálfum sér, eykur sjálfstraustið, þroskann og ábyrgðartilfinninguna.

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.