Landneminn - 01.12.1952, Síða 14

Landneminn - 01.12.1952, Síða 14
aðra hendi. Svo þögðu þeir augnablik og horfðust í augu. „Ég hafði hér vinnu,“ sagði maðurinn og titraði kringum munninn, — „ég hafði hér vinnu, en þú stalst henni frá mér.“ „Það er lygi,“ œpti Diddi, og óð að honum með krepptan hnefann. „Spurðu þá uppi,“ sagði hinn og hopaði undan, „spurðu þá hver hafi haft hér vinnu við að láta spær.i í poka, spurðu þá, ég heiti Jón. Já, spurðu þá bara, ég heiti Jón Jónsson. „Já en,“ stamaði Diddi, „ég var ráðinn hér af því það vantaði mann. Já, fulltrúinn réð mig af því það vantaði mann.“ Þá sneri Jón Jónsson sér undan og hló, eða þóttist hlæja. Það urgaði í honum og andlitið skældist: „Spurðu þá,“ sagði hann svo aftur og vafraði um. „Spurðu 'þá hvort hér hafi vantað mann.“ „Segirðu alveg satt,“ sagði Diddi, „geturðu svarið það?“ „Já, ég get svarið það,“ sagði hinn, og rétti upp tvo fingur. „Ég, Jón Jónsson, hafði hér fastavinnu við að láta spæni í poka.“ „Ég get ekkert gert að því,“ sagði Diddi og gekk til hans, „ég fór bara hingað í vinnu, ég sver að ég gat ekkert að því gert.“ „En þú gætir kannski svarað því af hverju þú ert hingað kominn og af hverju þú tókst vinnuna frá mér. Keyptirðu þig inn, ha?“ Þá hringdi klukkan, og þeir urðu samferða upp. „Nei nei, ég á ekkert, fulltrúinn ætlaði hara að hjálpa mér,“ sagði Diddi og gekk fram ganginn, rétti hönd inn í fataskápinn og tók jakkann. „Jæja, þú hefur kannski lent í einhverju, eða frels- azt, — kannski þú hafir frelsazt.“ „Já, ég lenti í dálitlu,“ sagði Diddi um leið og hann fór í jakkann . .. Og mennirnir komu út úr vélasalnum og gengu yf- ir að henginu, og tóku yfirhafnir sínar. „Hvað er að sjá, Diddi, ætlarðu að stela mínum jakka?“ Diddi var að leggja af stað út, en nam stáðar og leit niður á jakkann, og sneri sér svo að manninum, stamaði og roðnaði: „Ég var að tala og gáði ekki að mér.“ „Þinn jakki er bölvaður ræfill,“ sagði hinn og hló, „en minn er alveg nýr — ja, þú ert séður.“ „Ég var að tala, ég ætlaði ekki að gera það,“ sagði Diddi, og gekk við hlið mannsins út ganginn og hélt í arm hans. En maðurinn hló. „Þú hefðir grætt á því, þú hefðir bara stórgrætt á því. — Þú hér, Jónsi?“ sagði hann svo, og sneri sér að Jóni Jónssyni. „Ég leit bara hingað, svona til að sjá hver hefði tekið við af mér.“ „Og lízt þér ekki vel á hann? Diddi er bezti strák- ur, ég veit þið verðið vinir, perluvinir.“ „Ég sver, ég ætlaði ekki að taka jakkann,“ sagði Diddi og mændi upp á manninn. „Gerir ekkert,“ sagði hann hlæjandi um leið og hann fór, „það er sko allt í lagi.“ Og Diddi og Jónsi röltu þegjandi upp götuna, og snjókornin sátu í hrúgum í vari við rennusteinana, og á stöku stað hvirflaðist snjóföl fyrir vindsveipum. „Lentirðu í þjófnaði?“ spurði Jón Jónsson loksins. „Já, ég lenti í dálitlu, en ég hef lifað heiðarlegu lífi. Ég sver, ég ætlaði ekki að taka vinnuna frá þér — og svo þetta með jakkann. Þú sást að ég ætlaði ekki að taka jakkann.“ „Ég sá ekkert, þú tókst hann, en kannski hefurðu ekki ætlað að taka liann, en það skiptir engu máli. Það er ekkert sem skiptir máli þegar maður er kominn í hundana.“ „Þú?“ spurði Diddi og leit á hann: „Þú kominn í hundana? Hefur þú ekki lifað heiðarlegu lífi?“ Þá hló Jón Jónsson aftur, eða þóttist hlæja. Hann rak upp skræk og skældi sig: „Það heldurðu að sé Undir lok úætlunarinnar er skugRamynd þessi orðin að vcruleika í efnahaRslífi ,,MarsIiaH“-Iandanna. 78 LANDNEMINN

x

Landneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landneminn
https://timarit.is/publication/893

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.