Landneminn - 01.12.1952, Page 15

Landneminn - 01.12.1952, Page 15
mælikvarðinn á afkomuna,“ sagði hann og öskraði, og veltist um af uppgerðarhlátri. Og Diddi starði á hann og gapti. Og upp á götuhorninu námu þeir stað- ar og horfðust í augu. „Já, þú ættir að koma í heimsókn,“ sagði Jón, „korna og sjá, kannski konan mundi tala við þig. Það er allr í lagi, ég veit þið yrðuð beztu vinir. Komdu bara“ — og hann hélt áfram upp götuna. Og Diddi eigraði á eftir og tautaði: „En ég get ekkert að þessu gert, ég var ráðinn.“ Snjóúðinn seytlaði á móti þeim niður götuna, og skýin uppi yfir þeyttust til austurs, og úlfgráir kólgu- klakkar sendu frá sér mórauðar þokuklær niður í hafið. Og Jón Jónsson opnaði hliðið á spalagirðing- unni meðfram gangstéttinni og gekk heim að húsinu. „Ég hef ekkert að gera heim,“ sagði Diddi, og nam staðar fyrir utan. „Þú getur farið í vinnuna á.morg- un.“ Jón Jónsson kváði og sneri við. „Þú getur farið í vinnuna á morgun,“ sagði Diddi aftur, „ég fer þangað aldrei, nei, aldrei. „Ertu orðinn vitlaus, að sleppa fastavinnu? Það eru ekki allir sem eiga kost á fastavinnu.“ „Ég læt ekki stela vinnu frá öðrum handa mér, það er þá eins hægt að stela sjálfur.“ „Já, en góði minn,“ sagði Jón Jónsson. „Þetta er alvanalegt, sumir kaupa sig inn, aðrir eiga kannski mann að á æðri stöðum, og enn aðrir selja úr sér sál- ina. Og svo ætlar þú að spila þig stóran, þú.“ Og Jón Jónsson veltist um af hlátri. „Ég fer ekki aftur,“ endurtók Diddi, „aldrei, ég fer aldrei aftur.“ „Eruð þið mörg?“ spurði Jón Jónsson, og kom til baka, og lagðist fram á hliðgrindina. „Hvað áttu við?“ „Ég á við hvort þú eigir mörg börn, hvað þú hafir stórt heimili, skilurðu? „Við erum bara tvö.“ „Ég á fjögur börn,“ sagði Jón, „og hef ennþá kom- izt af, en það er nú ekki hægt að segja um alla.“ „Menn geta verið heiðarlegir, þó þeir verði að þiggja-“ „Já já, sei sei já, ég held þeir geti verið heiðarleg- ir,“ sagði Jón og skríkti. „Kannski er það af því sem þeir þiggja. Það er svo ekki betra að drepast úr því en öðru.“ Og renningurinn streymdi niður götuna og inn sundin að austanverðu, og hlóðst í skafla bak við húsin, og „PENING AR" Eltt l)að einkennilcgasta við lífið er, að beir fá- tæku, sem þurfa mest á peningum að halda, ern cinmitt þeir, som aldrci hafa þá. Finley D. Dnnne í bók sinni ,,Mr. Dooley'1. ★ I>að er aðeins cin stfitt I þjóðfélaginu, scm hngs- ar meira nm poninga en þeir ríkn, og það eru þcir fátækn. Oscar Wilde i rltgerð sinni ,,Sálarlí£ mannsins í sósalisku þjóðfélagi." það var ljós í hverjum glugga, og þeir hímdu sinn hvorumegin við hliðið. „Þú ættir að líta inn og sjá,“ sagði Jón Jónsson glottandi. „Þú liefðir gott af að sjá.“ „Sjá hvað?“ spurði Diddi og glápti á hann. „Ég hef ekki getað keypt mat í tvo daga, og þegar maður á fjögur börn . ..“ „Hvurn djöfulinn sjálfan,“ sagði Diddi og barði krepptum hnefa niður í staurendann við hliðið. Síðan stamaði hann og gapti. En Jón Jónsson þagði og starði á hann. „Því læturðu svona?“ sagði hann svo. „Er það mér að kenna?“ „Þetta er helvíti,“ sagði Diddi, gnísti tönnum og vipraðist um munninn. „Og um hádegið fórum við niður á Vetrarhjálp með börnin og fengum einn súpudisk,“ sagði Jón. „Og fenguð einn súpudisk,“ át Diddi eftir og kreppti hnefana. „Svo barði hún mig, þegar við komum inn.“ „Barði hún þig?“ tók Diddi upp. „Hver barði þig?” „Konan mín,“ sagði Jón Jónsson, og strauk sér yfir ennið. „Ójá, konan mín barði mig. Hún sagði að nið- urlægingin væri mér að kenna.“ „Já ,einmitt,“ sagði Diddi. „Og hvað á maður svo að gera, þegar konan hefur barið mann, og maður trúir því jafnvel sjálfur að niðurlægingin sé manni að kenna?“ „Farðu!“ æpti Diddi, og hljóp af stað niður stíg- inn. „Farðu í vinnuna — ég fer þangað aldrei . . . aldrei.“ Og Jón Jónsson stóð lengi kyrr og hallaðist fram á hliðið og starði niður í snjóinn. Síðan drattaðist hann niðurlútur heim stíginn og hvarf bak við húsið. LANDNEMINN 79

x

Landneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Landneminn
https://timarit.is/publication/893

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.