Unga Ísland - 01.12.1937, Qupperneq 3

Unga Ísland - 01.12.1937, Qupperneq 3
UNGH ISLAND 10. HEFTI. - r—■———■—i REYKJAVÍK, DES. 1937. Qíeðileg jóll Barnahátíðin mikla er að koma, hátfðin, sem lætur verða bjart jafnt í höllum og hreysum. Unga Ísland langar tii þess, að hún verði fagnaðarrik lesendum sínum og öllum fsienskum börnum. Það lætur sér ekki aðeins nægja, að börnin hiakki til ogþyki skemti- legt á jólunum. Það vill, að jólin verði þeim ti! djúprar og varanlegrar gleði. Fyrir mörgum börnum er logandi jólakertið eins og mynd af jólunum sjálfum. Og sú mynd er falleg og sönn. Þú kemur með logandi kerti og kveikir á öðrum kertum við logann. Þaö verður bjartara og unaðslegra i kringum þig. Ljósunum fjötgar. Þau eru öll kveikt af þessum eina loga, og þó hefir ekkert eyðst af honum. Hann logar áfram bjartur og skær. Þannig eru jólin. Jólaljósin ykkar, jólaljósin um íslandsbygðir frá strönd til fjalla, jó/aljósin um viða veröld eru kveikt af loganum við jötuna f Bet/e- hem, sem /ýsir enn, eins og forðum hirðunum og hersveit- unum himnesku. En þetta Ijós er kæríeikurinn sjálfur, eilifur, ódauðlegur, óþrjótandi, því að hann er frá Guði. Það er hann, sem kveikir á jó/akertinu þinu, og svo er það þitt að kveikja fleiri og fleiri jólaljós. Þú gjörir það með þvi að sýna öllum, sem þú nærð tit, ástúð og kær- leika, foreldrum þínum og systkinum og öðrum á heimili þínu, félögum þínum, og þó einkum þeim, sem eiga bágt á einhvern hátt, og þarfnast þín til að gleðja sig. Jólagleði þín mun ekki verða minni fyrir það, heldur muntu finna og reyna, að þetta er einmitt sanna jólagleðin. Þá ertu Hka samverkamaður fé/agsins, sem gefur út Unga Island og kennir sig við krossinn, merki kærleikans, merki Krists. Guð gefi ykkur öllum fagnaðarrika hátíð. ÁSMUNDUR GUÐM UNDSSON. iiK •i>: *:ik

x

Unga Ísland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.