Unga Ísland - 01.12.1937, Blaðsíða 10

Unga Ísland - 01.12.1937, Blaðsíða 10
UNGA ÍSLAND Í48 IV. IJað A'ar kominn aðfangadagur jóla. Maja litla sat inni í stofu og var að leika sér að því að klippa mvndii' úr gömlum dagblöðum. Mamma hennar var að laga allt til í húsinu, — hátíðin byrjaði kl. 6. Kkyndilega námu skærin staðar í liöndum Maju litlu; rétt hjá myndinni sem liún var að klippa úr, stóð stórum stöfum: ,,Lcdðrétting á vinningaskrá í happdrætti Ungmennafélagsins. Síðan stóð prentað með smærra letri: „Númer aðalvinningsins misprentaðist í blaðinu í gær; var nr. 892, en á að vera 872“. Þetta stafaði at' juís- lestri á tölunum 7 og 9. Bjartað fór að slá örara í brjósti Maju litlu. Ilún leit á dagsetningu blaðsins. Jú, það stóð heima, þetta var eintak af Kvölcl- blaðinu daginn eítir að það var clregið i happdrættinu. þrátt fyrir allt, hafði hún þó unnið; hún ljómaði öll af ánægju. Nú efaðist hún ekki lengur um, að guð væri góður, Hún kallaði á mömmu sína, lagði hendurnar um hálsinn á lienni og' sagði lienni upp alla söguna um happdrættlið. — Allan daginn gat hún ekki lialdist við hálfa mínútu á sama stað, af eintómri til- hlökkun. Klukkan var orðin sex.Blessuð jólin voru byrjuð. Nú var jólagleði Maju litlu ó- blandin. Um kvöldið fékk Maja að skreppa yfir í kofann til Jóa gamla. Gamli mað- urinn sat svo ósköp einmanalegur á rúm- í'letinu sínu og liorfði á kertaljós, sem brann á borðinu. Hún bauð honum gleði- leg' jól og rétti honum lítinn samanbrot- inn miða. „Þetta er jólagjöf frá mé'r til þín“, sagði hún skjálfrödduð. Jói gamli setti upp gleraugun og braut miðann í sundur. „Hvað er þettaf' spurði liann, steinliissa og' botnaði hvorki upp né niður í neinu. „Þetta er númerið, sem féll á hann Brúu þinn í happdrættinu. Nú áttu liann sjálf- ur og jtarft aldrei að Játa liann frá þér'“. sagði hún með barnslegum ákafa. Hann ætlaði varla að trúa sínum eigin eyrum. Andlit gamla mannsins ljómaði af gleði. eins og liann væri orðinn barn í ann- að sinn. Ilann tók litlu fötluðu stúlkuna í fang sér og þrýsti kossi á kinn liennar „Þú hef'ur fært mér jólagleðina aftur, — jólagleðina, sem ég hélt að væri týnd á þessiim jólum“, sagði hann hrærður. Um leið og Maja kvacldi Jóa gamla, þá j'étti liann henni ílangan pakka. „Þetta ter ofurlítil jólagjöf til þín“, sag'ði hann. Ilún gat ekki beðið með að gá í pakkann. Og livað haldið þið? Upp úr pakkanum kom ein fallega brúðan, sem liún hafði dáðst sem mest að í glugganum Iijá II. Péturssyni. „Svona brúðu liefur mig' alltaf mest langað tii að eignast", lirópaði hún himinliíandi glöð. Jólagleðin ríkti í hugum þeirra beggja Gleðin og þakklætið á afmælishátíð hans, sem -lætur óskir mannanna rætast. Ármann Kr. Einarsson Jólavísa. Pabbi segirt pabbi segir, bráðum koma- dýrðleg jól. Mamma segir, niamma segir, Magga fœr þá 'nýjan kjól. Hœ, hœ! ég lilakka til, hann að fá og gjafirnar, björt Ijós og barnas pil, borða sastu himmurnar. Páll J. Árdal.

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.