Unga Ísland - 01.12.1937, Qupperneq 11

Unga Ísland - 01.12.1937, Qupperneq 11
149 UNGA ÍSLAND Háskóli íslands í Reykjavík. Háskóli íslands var stofnaðu nieð lög- um árið 1911 á aldarafafmœli Jóns Sig- urðssönar forseta. Hann er œðsta mennta- stofnun landsins. Þjóöin fann það á aldar- afmæli frels'ishetjunnar, aö minningu llans varð ekki sýndur fmeiri sómi með neinu öðru en að teng-ja stofnun Háskólans við lmndrað ára afmæli lians. En íslenska þjóðin er fátæk og fámenn. Hún átti ekki neitt liúsrúm fyrir háskóla sinn. Hefir hann því frá uppliafi orðiö að starfa í þröngnm húsakynnum í Al])ingis- liúsinu . En nú er verið aö bæta úr þéssu. Fyrir nokkrum árum var moð lögum 'stofnað Happdætti liáskóla íslands, og er öllum á- góða þess varið til þess að koma upp liúsa- Ifynnum fyrii- Iláskólann. Ilefir Háskól- anum verið valinn staðnr vestanvert' við hjiirnina sunnanverða á fögrum stað, og (•ru þar nú ýmist risnar upp, eða eru að i'ísa upp, veglegar byggingar, sem veröa framtíðarheimkynn i Háskólans. Háskólinn liefir lengst af starfaö í fjór- Um deildum, guðfræðideild. kuknadeild, iagadeild og heimspekideild. I þrem liinum fyrstnefndu fá guðfræðingar, lælmar og lögfræðingar undirbúningsmenntun sína. 1 heimspekideildinni er lögð stund á heim- speki, og sögu og t.ungu og bókmenntir ís- lenzku þjóðarinnar. Auk þess ei1 nú ný- stofnuð við Háskólann atvinnudeild, þar sem fram fara ýmsar vísindarannsólcnir í þarfir atvinnuveganna. Hefir sú deild þeg- f.r fengið nýtt veglegt liús til umráða, sem reist hefir verið á lóö Háskólans. Þar er einnig fullgerður stúdentagaröurinn, bú- staður stúdenta, reistur fvrir samskota- og gjafafé, og' er hin virðulegasta bygging. En glæsilegasta byggingin er þó Háskóla- húsið sjálft, sem nú er í smíðum og langt komið. Hér fylgja með myndir af stú- dent;agarðinum, og* liinni undur fögru Há- slcólabyggingunni í smíðum. Verður að öll- um þessum liúsum liin rnesta bæjarprýði í Reylcjavík, aulc þess sem það má telja sómasamlega bætt úr liúsnæöisvandræðum Háslcólans. Meö stofnun Háslcólans og með því að búa honum svo góð skilyrði sem n-ú er verið að gera, er núverandi kynslóð full- orðinna manna í landinu að búa í haginn fyrir böráiin og æskulýðinn, svo þau njóti betri menntunar og skilyrða en forfeður þeirra hafa gert.

x

Unga Ísland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.