Unga Ísland - 01.12.1937, Blaðsíða 20

Unga Ísland - 01.12.1937, Blaðsíða 20
UNGA tSLAND 158 LESKAFLAR FYRIR LITLU RORNIN Jólakerlin. Einu sinni var fluga. Það var stór fluga. Hún var gul á lit með svörtum röndum. Það var samt ekki randafluga. Það var býfluga eða hunangs-fluga. Hún kom út úr holu sinni og suðaði hátt. Það var sólskin og hiti. Hunangs- flugan var úti allan daginn og safnaði vaxi. Hún safnaði líka hunangi. Þess vegna heitir hún hunangs-fluga. Hunangið er sætt og gott. Hún safnað1' vaxi og hunangi á hverjum degi, þegar sólskin var um sumarið. Hún safnaði vaxi og hunangi, þangað til hver krókur og kimi í holunni var fullur. Hún bjó til krukkur úr vaxinu og í þeim geymdi hún hunangið. Þá kom jólasveinninn. »Komdu sæl hunangsfluga,« sagði hann. »Þú átt mikið vax. Gefðu mér nú dálítið af því. Ég ætla að búa til kerti.« »Þú færð ekkert vax hjá mér,« sagði hunangsflugan. »Ég verð að geyma hunang í vaxkrukkunum mínum. Bráðum kemur veturinn, og þá verð ég að lifa á hunang- inu, sem ég safnaði í sumar.« »En þú átt svo mikið vax,« sagði jólasveinninn, »að þú getur vel gefið mér dálítið í kerti handa litlu börnunum í Koti. Þau fá aldrei jólatré, og í fyrra fengu þau engin kerti, litlu skinnin.«

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.