Unga Ísland - 01.03.1941, Page 18
Pottlokið.
Þátttakendur sitja í hring. I miðjum
hringnum er hafður hlemmur af potti
eða einhver hlutur, sem getur snúizt.
Einn þátttakandi setur lokið af stað
og nefnir um leið nafn einhvers og á
þá sá, er nefndur var, að vera snar í
snúningum og grípa lokið meðan það
enn snýst og nefna nafn annars og
þannig koll af kolli. Verði einhver of
seinn, er hann úr leik. Hringurinn þarf
að vera nokkuð stór..
Skrítlur:
Rakarinn: Hvernig viltu láta klippa
þig, drengur minn?
Drengurinn: Ég vil láta klippa mig
svona, einsiog hann pabba, með hvít-
an blett í hnakkanum.
*
Lítill drengur sagði, er honum var
bjargað upp úr læk, sem hann hafði
dottið í:
Mikið voðalega, held ég, að hann
pabbi hefði skammað mig, hefði jeg
drukknað.
*
Jón litli: Mamma, hvernig geta
stóru fiskarnir í sjónum opnað dós-
irnar?
Mamma: Hvað, ég skil þig ekki,
Jón: Jú, hann pabbi sagði, að stóru
fiskarnir borðuðu stundum litlu fisk-
ana eins og þá, sem væru í niðursuðu-
dósunum.
Anna Guðmundsdóttir, Þorfinnsstöð-
um, Vesturhópi, V.-Hún., óskar eftir að
skrifast á við stúlku eða pilt 14—16
ára, hvar sem er á landinu, nema í
Húnavatnssýslu.
Ása Ottesen, 14 ára, Miðfelli, Þing-
vallasveit, Árnessýslu, óskar að komast
í bréfasamband við jafnaldra sína ein-
hvers staðar á landinu.
Ráðning á talnaþraut
Það hafa nokkrir lesendur blaðsins
sent því ráðningar á talna-þrautinni, er
birt var í októberbl. Sumir hafa þó
misskilið þrautina og þess vegna ekki
raðað tölunum rétt. Ráðningin getur
verið á fleiri en einn veg og þó komið
út á sama hátt. — T. d.:
22—20—15— 3— 5
1— 14— 8—17—25
19_16—13—10— 7
2— 9—18—12—24
21— 6—11—23— 4
2—23—25— 7— 8
4—16— 9—14—22
21—11—13—15— 5
20—12—17—10— 6
18— 3— 1—19—24
25— 4—16— 3—17
2—20— 5—14—24
18— 7—13—19— 8
11—12—21— 6—15
9—22—10—23— 1
Þeir, sem réttar ráðningar sendu,
voru þessir:
Guðmundur Sigurjónsson, Flatey;
Davíð S. Vigfússon, Sunnuhvoli, Vopna-
firði, og Jón Þorgeirsson, Skógum,
Vopnafirði.
Felunafnavísa.
Kvenmannsnöfn:
G . . r . n, . . 1 . o . g, S i. r . ð . r,
S . ei . b . . r . , A . . a, G . ó .,
Geir . a . g, . ó . unn, G . ð . . ð . r,
G. i • a,. i . rú . , L . a.
GÁTA
Hálft er nafn mitt heiti á hæð,
hinn er hlutinn dulin mey.
Bróðir minn er saltur sær,
systir mín er jökuley.
Nórðfirðingur, 14 ára.
UNGA ÍSLAND
48