Árbók VFÍ - 01.01.1992, Síða 85
Tækniannáll 1990 83
Talið er að um 1.250 verkfræð- >-
(0
ingar séu í landinu, starfandi 3 CJ> c
verkfræðingar séu um 1.000 og þar af launþegar um 700. Kjara- T3 :0 l c c '5> = 7n ■ <o iS '<u 'c a> Q. D> CO «o (0 c c iL — <0 </> T3 <0 'ö R
könnunin náði til allra verkfræð- Starfsvettvangur LL CQ iS CQ o> Q < I o>
inga í landinu, en aðeins 265 eða Verkfræðistofa 28 2.423 58 9 6 2.484
rúmlega 20% þeirra svöruðu, sem Tölvuþjónusta 10 2.209 87 14 10 2.520
er nokkru minna en árið áður Versl.-þjónusta 9 2.430 90 117 12 2.772
(283). Þátttaka í könnuninni hefur Iðnaður 24 2.985 197 48 33 3.224
farið minnkandi ár frá ári. Verktakar 9 3.801 217 25 83 4.115
Samkvæmt könnuninni var Annað 14 4.133 370 91 35 4.685
meðaltal heildargreiðslna á árinu Ríkisslofnun 69 2.255 86 148 119 2.611
1990 um 3.121 (+13%) þúsundir Reykjavíkurborg 21 2.077 237 19 45 2.367
króna á hinum almenna markaði, Sveitarfélag 6 2.815 204 0 35 3.053
en um 2.684 (+18%) þúsundir Hálfopinber stofnun 12 3.077 168 91 117 3.371
króna á hinum opinbera. Þrátt Menntastofnun 10 2.252 31 134 355 2.678
fyrir talsvert hærri aukagreiðslur _ ^ l# ^ , , f ,
laila 1 Mcoaltal heildargreiðslna eftir staiýsvettvanqi á
nl opmbera geirans nægir það árjnu J9go mur er íþúsundum króna.
ekki til að vinna upp þann mun
sem er á beinum launum þessara hópa. Þessu til viðbótar ber að geta þess að meðalstarfsaldur á
almenna markaðinum er nokkru lægri en á hinum opinbera, svo raunverulegur munur er enn
meiri.
Meðaltal heildargreiðslna eftir starfsvettvangi á árinu 1990 eru sýndar í töflu 1.
Niðurstöður þessarar könnunar eru svipaðar og árið áður. Verkfræðistofur greiða lakari laun
en ríkisstofnanir og menntastofnanir og töluvert lægri laun en sveitarfélög og hálfopinberar
stofnanir. Reykjavíkurborg sker sig úr með lægstu launagreiðslur til verkfræðinga. Mennta-
stofnanir greiddu lægstu launin 1989 en greiddu ntun betur á árinu 1990. Athygli vekur að laun
í tölvuþjónustu eru lág, en þess ber að gæta að meðalaldur tölvufræðinga er lágur.
í könnuninni gáfu aðeins fjórir verkfræðingar upp atvinnuleysisdaga á árinu 1990, eða 1,6%
í stað 5,3% svarenda í fyrri könnun. Að meðaltali voru atvinnuleysisdagar 85 og var það allt
frá 15 dögum til 265 daga hjá þeim sem flesta daga hafði.
Þröngt var um vik í samningamálum um kjör á vinnumarkaðinum vegna þjóðarsáttar. í maí
1990 afturkallaði fjármálaráðherra ákvörðun um röðun verkfræðinga í launaflokka, sem gilt
hafði frá árinu 1987, og héldust því laun ríkisverkfræðinga óbreytt frá þeim tíma. Borgarverk-
fræðingar undirrituðu samning við borgina 19. desember 1990. Efnisatriði voru þau sömu og í
fyrri samningi og launahækkanir á nótum þjóðarsáttar. Samningur var gerður við Félag ráð-
gjafarverkfræðinga, FRV, í janúar 1990. Launalið þessa samnings var síðan sagt upp af FRV
15 dögum síðar. Síðan fengu verkfræðingar á verkfræðistofum launahækkanir að mestu að
hætti þjóðarsáttar.
3.3 Félag ráögjafarverkfræöinga
Verkfræðistofur í Félagi ráðgjafarverkfræðinga, FRV, eru 32 og félagsmenn 106. Könnun hef-
ur verið gerð á rekstri og afkomu verkfræðistofa í FRV árin 1989 og 1990. Ekki fengust svör
hjá öllum stofunum. Helstu niðurstöður kannana eru sýndar í töflu 2.