Árbók VFÍ - 01.01.1995, Page 95
1-4
Lög og reglur VFI
1 Lög Verkfræðingafélags íslands
(Samþykkt á aukaaðalfundi 28. nóv 1974 með áorðnum breytingum til og með aðalfundar 28. mars 1994).
Nafn
1. gr.
Félagið heitir Verkfræðingafélag íslands, skammstafað VFÍ, og hefur aðsetur í Reykjavík.
Um málefni Verkfræðingafélags íslands fjalla aðalstjórn og framkvæmdastjórn, sbr. 13. og
14. grein, auk félagsfunda.
Markmið félagsins
2. gr.
Markmið félagsins er:
að efla verkfræðilega og vísindalega þekkingu félagsntanna,
að auka gagnkvæm kynni þeirra,
að stuðla að tækniþróun í landinu,
að auka álit verkfræðilegrar og vísindalegrar menntunar,
að auka þekkingu og skilning á starfi verkfræðinga,
að gæta hagsmuna stéttarinnar í hvívetna.
3. gr.
Félagið vinnur að markmiðum sínum meðal annars með því:
að halda fundi um áhugamál félagsmanna,
að halda uppi fræðslustarfsemi, svo sem námskeiðum og erindaflutningi,
að efna til skoðunarferða,
að gefa út Tímarit VFÍ og stunda aðra útgáfustarfsemi,
að stuðla að starfsemi sérgreinadeilda, sem Ijalla um máleftii hinna ýmsu verkífæðigreina,
að stuðla að starfsemi hagsmunafélaga, er gæta hagsmuna stéttarinnar,
að hafa tengsl við samtök verkfræðinga erlendis,
að hafa tengsl við samtök háskólamenntaðra manna hérlendis og erlendis.
Félagar
4. gr.
Almennir félagar geta orðið:
1. Þeir íslendingar, er lokið hafa viðurkenndu fullnaðarprófi í verkfræði, svo og þeir íslend-
ingar, sem lokið hafa fullnaðarprófi við viðurkenndan háskóla í þeim vísindagreinum, sem
verkfræðin byggist á (eðlisfræði, efnafræði, stærðfræði o.fl.). Einnig þeir erlendir menn, sem
lokið hafa sams konar prófi, ef umsókn þeirra hlýtur samþykki aðalstjórnar samkv. 8. gr.
2. Aðrir fræðimenn í raunvísindum eða framkvæmdamenn á tæknisviði, sem aðalstjórn
félagsins býður að gerast félagar, þegar ástæður mæla með.